Atvinnuleysið á hraðri niðurleið,segir Steingrímur Ráðherra: með hákólaprófi í jarðfræði!!!

Atvinnuleysi á hraðri niðurleið

FréttablaðiðAðsendar greinar 17. júlí 2012 06:00

Tweet
SendaPrenta

Steingrímur J. Sigfússon efnahags-, viðskipta- og iðnaðarráðherra
Steingrímur J. Sigfússon skrifar:
Einhver ánægjulegustu tíðindi síðustu vikna eru nýbirtar tölur um atvinnuleysi. Skráð atvinnuleysi samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar mældist 4,8% í nýliðnum júnímánuði og hefur lækkað hratt undanfarna mánuði. Greinilegt er að aukin umsvif í efnahagslífinu eru að skila fleiri störfum. Stofnunin reiknar með að atvinnuleysi haldist áfram lágt í júlí og spáir 4,5-4,9%. Nú þegar ætla má að slaki niðursveiflunnar hafi að mestu unnist upp mun áframhaldandi efnahagsbati skila sér hraðar í lækkun atvinnuleysis og fjölgun starfa. Vissulega eru þessar atvinnuleysistölur enn of háar en það er þó athyglisvert að skráð atvinnuleysi í síðastliðnum júnímánuði, tveimur og hálfu ári eftir að það náði hæstu hæðum í kjölfar hrunsins, er lægra en í sama mánuði árið 1995.

Tölurnar síðustu tólf mánuði benda til þess að dregið hafi úr árstíðabundnu atvinnuleysi. Athyglisvert er að sjá að ekki var tilkynnt um neinar hópuppsagnir í mars, apríl, maí og júní. Einungis ein hópuppsögn hefur verið tilkynnt á árinu 2012. Í samanburði við flestar aðrar Evrópuþjóðir er atvinnuleysið hér mjög lágt. Efnahagsbatinn nær nú til vel flestra geira atvinnulífsins, þar með vex fjölbreytni þeirra starfa sem bætast við og verði einhver þeirra fjárfestingarverkefna sem eru í undirbúningi að veruleika á næstu misserum mun það enn bæta stöðuna.

Ársfjórðungsleg vinnumarkaðsmæling Hagstofunnar staðfestir einnig batnandi stöðu á vinnumarkaði. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fyrir fyrsta fjórðung 2012 fjölgaði starfandi um 1.300 manns og atvinnulausum fækkaði um 1.000 frá sama tíma í fyrra. Ánægjulegt er einnig að sjá að þeim sem hafa verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur fækkaði um 1.000, úr 2,2% vinnuafls á fyrsta ársfjórðungi 2011 í 1,6% vinnuaflsins á fyrsta ársfjórðungi 2012. Aðferð Hagstofunnar til að mæla stöðuna á vinnumarkaði er ólík mánaðarlegu mælingunum hjá Vinnumálastofnun þar sem Hagstofan byggir á úrtakskönnun úr þjóðskrá. Niðurstöður úr báðum þessum mælingum sýna jákvæða þróun á vinnumarkaði með minnkandi atvinnuleysi.

Atvinnuástand batnar um allt land
Skráð atvinnuleysi var 5,5% á höfuðborgarsvæðinu í júní og minnkaði úr 6,3% í maí. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 3,5% og minnkaði úr 4,5%. Á Suðurnesjum hefur orðið mikil breyting á síðastliðnu ári, þannig mældist atvinnuleysið þar 7,5% í nýliðnum júní samanborið við 10,6% á sama tíma í fyrra. Að sama skapi hefur dregið úr atvinnuleysi bæði á meðal karla og kvenna á landsvísu. Batinn er því ekki stað- eða kynbundinn heldur almennur. Því ber að fagna.//////KARLIN STEINGRÍMUR LEYGUR DAG EFTIR DAG MEÐ ÞETTA ,ÞAÐ ER SVO MIKIÖ DULIÐ ATVINNULEYSI AÐ ÁÐ HÁLVA VÆRI NÓG ,FÓLK FER EKKI I LÁGLAUSNASTÖRF ÞAR AÞAUB ERU MYNNI EN ATVIULEYSISBÆTUR svo eru men  ísvartri vinnu meira og mynna/Svona er þetta bara!!!!!/Halli gamli   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband