Það verður veðurbreyting um helgina eða Sunnudag,segir Siggi Stormur!!!

ég og blakkurEg 1950 tilhugalífið
„Um helgina verða miklar veðrabreytingar og þær fyrstu í nokkrar vikur af þessum toga,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur í samtali við DV.is en von er á dýpstu lægð sem sést hefur yfir landinu í júlí, síðan 1901, um helgina. „Þetta mun hafa í för með sér grundvallarbreytingu á veðrinu á landinu. Nokkuð sem menn hafa haft miklar áhyggjur af hvað væri eiginlega gerast. Þetta er búið að vera tiltölulega gott sældarlíf í hægum vindi og hlýindum. En þessi lægð mun flytja með sér talsvert sterkan vind og allhvass vindur eru mörkin fyrir að tjöld geti haldist uppi,“ segir Sigurður en langtímaspár gerðu ráð fyrir að júlí yrði blautari en júní. „Þetta gæti verið vendipunktur fyrir sumarið á Íslandi. Hann er að fara í norðan átt eftir helgi og svo kemur önnur lægð á miðvikudag. Það þýðir að menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af þurrkum, frekar að menn á ferðalagi verði leiðir á bleytu. Síðan er stutt í næstu lægð á miðvikudag með rigningu á sunnan og vestanverðu landinu. Það eru umhleypingar framundan og miklar breytingar á því sem verið hefur í sumar,“ segir Sigurður.//////////Það er svo að veðrið er okkur kært ,en nú  mun þarna varða breyting á það kemur kröpp lægð að sunnan og yfir okkar allt að 968 millibör og hvessir mjög sennilega bloti einnig,svo kemur hann Norðan og siðan önnur lægð á Miðvikudag,það er svo að okkur vantar rigningu og síðan þurk á eftir,við skulum bara vona að sumarið sé ekki búið,því miður átti ég ekki mynd að Sigurði Veðurfræðing,en birti bara gamlar myndir af mér í staðin,en gamli er mikill veðurmaður/Halli gamli 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1046586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband