Laugavegurinn mun líða undir lok/Það er svo að þessir menn sem þarna eru valda þessu ekki als ekki!!!!

Laugavegurinn mun líða undir lok Innlent | mbl.is | 26.7.2012 | 18:37 „Við hörmum þessa hækkun og ljóst er að hún mun enn frekar fæla viðskiptavini frá fyrirtækjum í miðborginni,“

segir Björn Jón Bragason talsmaður hóps kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg um hækkun stöðumælagjalda í miðborginni og víkkun gjaldskyldutíma. ann segir að með sama áframhaldi muni verslun við Laugaveg líða undir lok. Gjaldskyldutími á laugardögum á svæðum 1, 2 og 4 er nú frá 10 til 16. Gjaldsvæði 1 mun kosta 225 kr. á klst. í stað 150 kr. og gjaldsvæði 2 og 4 mun fara úr 80 kr. í 120 kr. á klst. Nemur hækkunin á gjaldsvæði 1 50%. „Við eigum í mikilli samkeppni við önnur verslunarsvæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem greitt aðgengi er auk nægra gjaldfrjálsra bílastæða,“ segir Björn Jón og vísar þar meðal annars til Síðumúla, Ármúla,

Skeifunnar auk verslunarmiðstöðva. „Borgin kýs að innheimta ekki bílastæðagjöld á þessum svæðum en gerir það aftur á móti í miðborginni,“ segir Björn Jón. Dressman hverfur „Hækkun af þessum toga gerir ekki annað en að hefta aðgengi og veikja þannig verslun á svæðinu,“ segir Björn Jón.

„Mikill viðskiptaflótti er á svæðinu og stórum og stöndugum fyrirtækjum á svæðinu fækkar stöðugt. Í því samhengi má nefna Dressman sem fer úr miðbænum með haustinu, en sú verslun hefur lengi verið meðal þeirra stærstu í miðbænum,“ segir Björn Jón. Að hans mati er miðborg Reykjavíkur ekki að öllu leyti sambærileg við borgir víða í Evrópu. „Í Reykjavík er ekki sú mikla umferð gangandi vegfarenda sem finnst erlendis, þar sem fólk kemur gagngert til að ganga á milli búða og versla,“ segir Björn Jón.

„Borgaryfirvöld verða að horfast í augu við þann raunveruleika að fólk kýs að ferðast um á sínum eigin bíl, þó að auðvitað sé jákvætt að Íslendingar noti líka aðra samgöngumáta. Þetta er hins vegar sá raunveruleiki sem við búum við og það þarf að huga að því hvernig fólk getur komist í verslun miðbæjarins þrautalaust,“ segir Björn Jón.

Framtíðarhorfurnar svartar Hann leggur fram aðrar lausnir á bílastæðavanda miðbæjarins. „Okkur finnst æskilegt fyrirkomulag sem tekið hefur verið upp í Bretlandi og víða í Evrópu, að afnema gjaldskyldu og hafa þess í stað klukkur sem bílstjórar koma fyrir í gluggum bifreiða sinna. Þannig er hægt að takmarka dvöl bifreiða í stæðum á hentugan máta. Ég er á þeirri skoðun að notast ætti við klukkur af þessu tagi á öllum stæðum í eigu borgarinnar,“ segir Björn Jón en Akureyringar hafa að hans sögn notast við þetta fyrirkomulag með góðum árangri. Hann segir framtíð verslunar í miðbænum ótrygga.

„Með sama áframhaldi er ekki langt í það að verslun við Laugaveginn líði undir lok. Við höfum séð sömu þróun víða í Evrópu þar sem húsnæði stendur autt og neglt er fyrir alla glugga á stöðum sem áður voru iðandi af lífi,“ segir Björn Jón. „Skemmst er að minnast þess að miðstöð verslunar á höfuðborgarsvæðinu var fyrir 30-40 árum í Kvosinni. Hún er algjörlega horfin þaðan og ekki eru heldur mörg ár síðan margar verslanir stóðu við Hverfisgötuna,“ segir Björn Jón.///////Það er marks að gæta við þetta ogi raun allt skipuleg Borgar sem eiginlega verður að taka uppá nýtt,svæði sem sagt er að þetta megi byggð eru gæn svoði sem við börð'umst fyror að hafa hér áður mig minnir að Geir Hallgrísson hafi byrjað að  framkvæma þetta,e  vinsrið vill bara kommunum og allir i einum hóp og a´reyðhjólum og þetta svo byggða að þetta verði ein og i JAPAN helst á 3-4 hæðum,þar sem landleisi er!!!það þíðir ekki að berjast ámóti Bilunum als ekki það er eð koma bílar sem ekki menga neitt og það er framtíðin,við höfum nóg pláss til að hafa umferð um flestar götutr og áð er það sem við  viljum að meirihluta ekki spurning,því miður er þetta orðin árátta að við sem við þetta búum erum bara ekki spurð,það skal bara ver svona og hinsegin,Laugavegur er einnig þannig!!! að veðurfar er svo á Íslasndi ennþá að það eru fáir dagar á árinu sem ekki er þau veður að fólk vilja labba þaran?? en það er engin að óskapast,yfir smá lokun við vissra aðstæður og sérataka góðvirðisdga!!! en þessi bílfjansamlegu eiga bara að búða sér i vesturbænum og loka honum alveg eins og þeir sem vildu gera það við Arnarnensið forðum,en skipulagið veruð að taka i gegn alveg frá grunni,og það er okkar allra að taka þátt/Halli gamli


mbl.is Laugavegurinn mun líða undir lok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1046429

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband