Samaras fundar með lánardrottnum//sagan endalausa,þetta hlýtur að enda Grikklant út!!

Samaras fundar með lánardrottnum Erlent | mbl.is | 27.7.2012 | 11:31 Antonis Samaras, forsætisráJose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, ásamt...ðherra Grikklands, mun í dag reyna að sannfæra Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evrópu um að Grikkir eigi skilið að fá lokahluta neyðaraðstoðarinnar afgreidda.

Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, að ESB, AGS og seðlabankinn fari nú yfir ríkisfjármál Grikklands áður en ákvörðun verður tekin um hvort afgreiða eigi 31,5 milljarða evra lán til grísku stjórnarinnar. Ljóst er að ef Grikkir muni standa frammi fyrir gjaldþroti og yfirgefa evrusamstarfið fái þeir ekki lánið.

Í gær sagði Samaras að grísk stjórnvöld myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma Grikklandi aftur á réttan kjöl. Ríkisstjórn landsins vinnur nú að gerð tveggja ára áætlunar þar sem stefnt er að því að skera niður ríkisútgjöldin sem nemur 11,7 milljörðum evra.

Talið er að grískur almenningur megi búast við frekari skerðingu má lífeyrisréttindum, bótum og útgjöldum til heilbrigðismála.///////Þetta er allt uppi loft þarna !!og eina rétta að manni finnst er að fari þarna út og fleiri svona aðferðir ganga ekki lengur að þvinga fólk til hlýðni án þessa að sjá fyrir endann á skuldabarslinu,sem þau verða bara að redda á án evrunnar!! við eigum öll að sjá að þessi samtök eru búin að ganga sér til húðar fyrir löngu/Halli gamli


mbl.is Samaras fundar með lánardrottnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband