2.8.2012 | 16:16
Ofbeldismaðurinn sjaldan fjarlægður///Það ber að veita lögreglu meira vald til að fjarlægja ólátareggi!!!
Ofbeldismaðurinn sjaldan fjarlægður Innlent | mbl | 2.8.2012 | 15:20 Á hverjum degi sinnir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verkefnum sem snúa að ofbeldi eða ófrið inni á heimilum.
Á síðasta ári voru alls bókuð 850 verkefni sem sneru að ofbeldi eða ófrið inni á heimilum og er það svipað og árið 2010, þegar um 900 bókanir voru skráðar. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um þróun mála fyrri hluta árs 2012 en bráðabirgðatölur benda þó til þess að ofbeldismálin séu færri það sem af er ári. Stutt síðan farið var að skrá heimilisofbeldi sérstaklega
Áður fyrr voru ofbeldismál innan veggja heimilis skráð eins og hvert annað líkamsárásarmál. Í eðli sínu eru þessi ofbeldismál hins vegar talsvert ólík og árið 2006 var gerð gangskör í því að taka heimilisofbeldi fastari tökum. Síðan þá hafa slík útköll verið skráð sérstaklega. Hörður Jóhannesson aðstoðaryfirlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir að þessi mál séu oft erfið við að eiga.
Á bak við þau 850 tilvik sem skráð voru sem heimilisofbeldi árið 2011 eru margvíslegar aðstæður að sögn Harðar. Lögreglan hefur afskipti af ofbeldi eða ófriði í heimahúsum ýmist vegna þess að nágranni hringir og lætur vita eða einhver innan heimilisins biður um hjálp. Ekki er alltaf á ferðinni langvarandi líkamsmeiðingar og kúgun maka, heldur getur t.d. verið um að ræða ungt fólk sem ógnar foreldrum sínum í kjölfar fíkniefnaneyslu, ofbeldi sem beitt er af fjölskyldumeðlimi með geðræn vandamál eða þegar sýður upp úr milli hjóna vegna forræðisdeilna eða skilnaðar, o.s.frv.
Þótt þetta sé alltaf alvarlegt þá er sem betur fer ekki mikið um grafalvarleg tilvik eins og þessi grófu og langvarandi ofbeldismál eru," segir Hörður. Lögregla kölluð til í óþökk heimilisfólks Í ársskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 2011 kemur fram að í um fjórðungi tilvika af 850 hafi líkamlegu ofbeldi verið beitt, en þar sem fólk hafi ekki verið að skaða hvert annað hafi dauðir hlutir fengið að finna fyrir því.
Eignaspjöll og grófar hótanir fylgi oft sögunni. Stundum voru börn inni á heimilunum og segir í skýrslunni að það sé dapurlegur hluti af störfum lögreglu að koma að slíkum málum. Það sem hins vegar gerir aðkomu lögreglu flóknari er að sögn Harðar sú staðreynd að þessi mál eiga sér stað inni á heimilum fólks, þar sem lögregla hefur takmarkað vald til afskipta.
Stundum kemur lögregla í óþökk þeirra sem inni á heimilinu eru. Þetta getur verið af öllu tagi, stundum er þetta drykkja á heimilinu sem leiðir til þess að fólk fer að rífast og slást og nágrannarnir láta vita en þegar lögregla kemur vill fólkið ekki tala við hana.
Við kunnum líka margar sögur af því þegar bráir af fólki eftir helgina og það hættir við að vilja gera eitthvað í málinu." Vísa fólki þangað sem það getur fengið hjálp Það hve fjölbreytt þessi ofbeldis- og ófriðarmál á heimilum eru þýðir líka að það er engin ein lausn sem lögregla getur gripið til á vettvangi. Fyrst og fremst er reynt að stilla til friðar og forða meiðslum og eyðileggingu. Úrræðin sem lögreglan hefur er fyrst og fremst að vísa fólki áfram eftir atvikum, t.d. á Kvennaathvarfið, eða kalla til barnayfirvalda ef velferð barna er í hættu.
Um svipað leyti og byrjað var að skilja heimilisofbeldi frá öðrum líkamsárásarmálum í skrám lögreglu endurvakti Félagsmálaráðuneytið sérstakt meðferðarúrræði fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum. Úrræðið nefnist Karlar til ábyrgðar og hefur reynst vel, því frá 2006 til ársloka 2011 hafa 162 karlar leitað sér hjálpar. Ekki er hægt að skikka menn í meðferðina ef þeir vilja hana ekki sjálfir og lögregla hefur að sögn Harðar reynt að beina mönnum þangað, með litlum árangri þó. Við áttum eyrnamerkt pláss þarna og höfðum tilvísunarrétt, en menn virtust ekki tilbúnir til þess.
Einhverra hluta vegna eru fáir sem þiggja það eftir bein afskipti lögreglu. Austurríska leiðin lítið nýtt Eitt er það úrræði sem verið hefur til staðar í rúmt ár en lítið hefur reynt á, en það er hin s.k. austurríska leið, sem Alþingi samþykkti sem lög í júní 2011.
Samkvæmt austurrísku leiðinni hefur lögreglustjóri eða fulltrúi hans heimild til að fjarlægja ofbeldismanninn sjálfan af heimilinu og er hugsunin sú að styrkja réttarstöðu fórnarlambs ofbeldisins, sem þarf þá ekki að flýja heimili sitt í ofanálag við að vera beitt ofbeldi.
Sem fyrr segir hefur austurríska leiðin verið í gildi í rúmt ár en hefur aðeins tvisvar sinnum verið beitt á þeim tíma, nú síðast í maí. Auk þess nýtti lögreglan á Akureyri eitt sinn ákvæðið til að fjarlægja mann af heimili vegna ofbeldis, en þeirri ákvörðun var hnekkt í Héraðsdómi Norðurlands. 174 konur og börn flýðu heimili sín í fyrra Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að miðað við þau mál sem komi inn á borð til þeirra eigi hún erfitt með að trúa því að ekki hefði verið hægt að beita þessu ákvæði oftar síðustu 14 mánuði.
Árið 2011 dvöldu samtals 174 konur á börn í Kvennaathvarfinu sem ekki gátu búið heima hjá sér vegna ofbeldis. Við vissum að við myndum áfram vera með fullt hús hjá okkur, að þetta myndi ekki hafa það afgerandi áhrif strax, en það eru vonbrigði að það hafi ekki gerst oftar. Mér finnst allavega úrræðið sorglega máttlaust ef tilfellið er að það sé fullnýtt svona."//////Maður veit að þetta er erfitt verkefni lögreglu!!! og svo annarra,en það er svo að ég og sennilega flestir vilja ,að þessum lögum verði breytt endanlega ,allavega til eins árs í senn ,ef hægt er og skoða svo hvað breytist það er málið að lögregla getur ekki við svo búið lengur,og að sjálfsöðu ekki heldur þeir sem fyrir þessu verða,Lögregla hefur mikið meira en nóg á sinni könnu ekki spurning/Halli gamli
Ofbeldismaðurinn sjaldan fjarlægður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.