Nafn dagsins hálfgert öfugmæli/Hárr rétta athugað hjá Stefáni Einari !!!!!

Nafn dagsins hálfgert öfugmæli Innlent | mbl | 3.8.2012 | 11:17 Stefán Einar Stefánsson, formaður VR leggur til að þeir verslunarmenn sem vinna á frídegi verslunarmanna fái aukafrídag á móti.

Hann hyggst beita sér fyrir henni í næstu kjarasamningum og segir það hálfgert öfugmæli að tala um frídag verslunarmanna, þegar flestir aðrir en þeir eigi frí. Stefán Einar Stefánsson, formaður VR leggur til að þeir verslunarmenn sem vinna á frídegi verslunarmanna fái aukafrídag á móti. Þessi hugmynd hefur fengið lítinn hljómgrunn frá verslunareigendum, en Stefán hyggst beita sér fyrir henni í næstu kjarasamningum.

„Auðvitað hefur maður ákveðinn skilning á þessari þjónustuþörf, en ég hef bent á að ef menn vilja virða þennan frídag og þessa hugmynd frá árinu 1894 um sérstakan frídag verslunarmanna, þá eigi þeir sem vinna þennan dag að fá stórhátíðarálag auk þess að fá frídag annan eða þriðja mánudaginn í ágúst,“ segir Stefán. Hann kynnti þessar hugmyndir fyrir ári síðan, en hefur lítinn hljómgrunn fengið. „Ég veit ekki til þess að nein fyrirtæki séu með þetta fyrirkomulag og ég hef lítil viðbrögð fengið, hvorki neikvæð né jákvæð. En það myndi ég gjarnan vilja sjá. Þetta er ekki fyrsta eða stærsta krafan okkar í næstu kjarasamningum, en þetta er hálfgert prinsippatriði.“ Verður þetta ein af kröfunum í næstu kjarasamningum?

„Ég er ekki einn um að móta þá kröfugerð, að henni koma þúsundir félagsmanna. En ég mun gera það að tillögu minni og beita mér fyrir því að þetta verði að veruleika,“ segir Stefán. En er hugtakið frídagur verslunarmanna ekki öfugmæli, þar sem verslunarfólk er ein af fáum stéttum sem eru við störf á þessum degi? „Jú, það má segja það. Þarfir þjóðfélagsins hvað varðar þjónustu hafa breyst og það er auðvitað sjálfsagt að koma til móts við það.

En við verðum líka að muna að þetta er dagur til heiðurs verslunarstéttinni og við eigum að bera meiri virðingu fyrir henni en gert er í dag,“ segir Stefán. Sundlaugar víða opnar og sumar matvörubúðir Þjónusta verslana og ýmissa þjónustustofnana verður með misjöfnum hætti um helgina. Sundlaugar verða víðast hvar opnar.

Þær verða opnar samkvæmt hefðbundnum helgaropnunartíma um helgina og verða einnig opnar á þeim tíma á mánudaginn. Á laugardag og sunnudag verður hefðbundin helgaropnun í öllum verslunum Bónus, en þær eru allar lokaðar á mánudaginn.

Verslanir Krónunnar verða sömuleiðis opnar um helgina samkvæmt hefðbundnum opnunartíma, en um helmingur þeirra verður opinn á mánudaginn. Á laugardag og sunnudag verða verslanir Nettó verða opnar samkvæmt venju, en á mánudaginn eru þær flestar lokaðar.

Verslanir Samkaups Úrvals og Strax verða opnar um helgina og sumar þeirra verða opnar á mánudaginn eftir hádegi. Verslanir Kaskó verður opin á laugardaginn, en þar verður lokað á sunnudag og mánudag. Verslanir Hagkaups verða opnar um helgina, þó er verslunin í Kringlunni lokuð á sunnudaginn. Allar Hagkaupsverslanirnar eru síðan lokaðar á mánudaginn, fyrir utan þær fjórar verslanir sem eru með sólarhringsopnun.

Þá verða verslanir Nóatúns opnar alla helgina og einnig á mánudaginn frá klukkan átta á morgnana til miðnættis. Nánari upplýsingar um opnunartíma verslana má finna á vefsíðum þeirra./////Þetta er alveg rétt hjá Stefáni Einar form.VR og er ég honum alveg sammála!! þetta er skrumskæling á nafninu ekki spurning!! en að semja ,þá um annan frídag ,mundi lækna þetta að vissu marki !!og það verður að gera!! þetta fólk sem vinnur þessa helgi á að fá það bætt,annað er ekki sæmandi okkur, sem viljum þessu fólki vel sem okkar þjónar flest mjög vel ,og þetta verður að gerast ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Nafn dagsins hálfgert öfugmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband