200 lítrar af súpu í þvottapottum///Fiskidagar eru vinsælir!!!!!


Veðrið leikur við Dalvíkinga og gesti þeirra á hinu árlega... 200 lítrar af súpu í þvottapottum Innlent | mbl | 10.8.2012 | 21:57

„Ég horfi út um eldhúsgluggann hjá mér ogbiðröðin er hér meðfram öllum gaflinum, yfir Mímisveginn og ég sé ekki fyrir endann á henni," segir Ragnheiður Friðgeirsdóttir, sem eys nú súpu í skálar eins og hún eigi lífið að leysa fyrir gesti og gangandi á Dalvík, á árlegu fiskisúpukvöldi.

Á morgun er svo fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli á Dalvík. 200 lítrar af súpu í gömlum þvottapottum „Það byrjaði nú þannig að rétt áður en við kveiktum undir hellirigndi og við vorum alveg niðurbrotin

. En svo náttúrulega stytti upp, því almættið er bara þannig að við erum á sérsamning og nú er veðrið yndislegt, held það sé 16-17 stiga hiti," segir Ragnheiður sem hefur þó ekki mikinn tíma til að njóta veðurblíðunnar því hún stendur sveitt yfir pottunum í eldhúsinu. „Þetta eru 200 lítrar af súpu, viið erum með tvo stóra rafmagnsþvottapotta, svona eins og hvíti þvotturinn var þveginn í í gamla daga.

Svo eru bara fjórir að ausa, einn er í því að skammta brauð og annar setur rækjur í súpuna. Þannig að þetta gengur mjög hratt fyrir sig hjá okkur." Útlendingarnir eiga ekki orð Þeir sem standa aftastir í röðinni löngu ættu því ekki að þurfa að örvænta. „

Svo tókum við upp á því að líma hérna á húsvegginn brandara og kynningu á heimilisfólki, svo fólk hafi eitthvað að gera á meðan það bíður." Ragnheiður hefur varla tölu á því hve margir hafa þegið af henni fiskisúpu síðan kveikt var á kyndlunum kl. 20:15, til marks um að gestir væru velkomnir, en hún segir að flestir ef ekki allir séu utanbæjarfólk og þar af töluvert um útlendinga. Hróður fiskisúpunnar berst því víða.

„Ég er búin að hitta Dana, Frakka, Breta og Hollending og þeir alveg eiga ekki orð yfir þessu. Svo var Færeyingur hérna með okkur frá færeyskri sjónvarpsstöð, sem var að gera heimildarþátt um þessi fiskidagshelgi.

Hann kom til okkar að taka upp undirbúninginn á súpunni og vildi sjá þegar við settum fiskinn út í rétt fyrir 20 og kveiktum á kyndlunum. Svo er líka svo gaman í þessu að maður er búinn að kynnast fólki sem kemur ár eftir ár, þannig að þetta er alveg yndislegt." Margir smala fjölskyldunni í fiskisúpu Ragnheiður hefur tekið þátt í fiskisúpukvöldinu frá upphafi og er þetta því 8. skiptið sem hún stendur við pottana og hún hyggur á þátttöku aftur að ári. „Stundum segir maður, „guð, þetta var í síðasta skiptið núna," en svo eftir á þá er þetta svo gaman að maður bara tímir ekki að hætta.

Fólk er svo þakklátt, þetta er eins og maður sé að gera risa góðverk og ég tel mig reyndar vera að gera það, að standa í tvo daga og elda," segir Ragnheiður og hlær. Hún neitar því ekki að mikil vinna liggi að baki þessu kvöldi og þakkar börnum sínum, tengdabörnum og mági fyrir að gera henni þetta kleift. „Þetta er rosa vinna og gengi aldrei ef einhverjir tveir eða fjórir ætluðu að vera í þessu. En margir nota líka kvöldið til sem hálfgert ættarmót, fólk hittist og er með súpu fyrir fjölskylduna bara án þess þó að kveikja á kyndlum og bjóða inn fólki af götunni."

Fólki hafi gaman og borði fisk Ragnheiður segir að slökkt verði undir pottunum kl. 22:15. „Það er að segja ef ég hef nóg og þrauka allan tímann, það er aðalkeppikeflið að geta gefið öllum að borða en að sjálfsögðu náum við því ekkert alltaf." Markmið Fiskihátíðarinnar á Dalvík er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. ///////Það er mjög svo mikil þáttaka, á þessum degi og margir sem þarna fara, ár eftir ár,enda mikið til þessa vandað og veðurr sennilega sæmilegt að sjá að verði,þetta er grettistak sem þeir sem þetta halda á Dalvik hafa gert .þarna og eiga heiður skilið að huga að íslenska Fiskinum flott!!! og matalíu skilið fyrir það!!!/Halli gamli


mbl.is 200 lítrar af súpu í þvottapottum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband