Má beita þýska hernum í Þýskalandi/Þetta er varhugavert dæmi,og mynnir á gamal daga!!

Má beita þýska hernum í Þýskalandi Erlent | mbl.is | 17.8.2012 | 20:52 Hægt verður í héðan í frá að beita þýskÞýskir Leopard 2 skriðdrekar.a hernum á götum borga í Þýskalandi ef brýn nauðsyn krefst þess.

Þetta er niðurstaða stjórnlagadómstóls landsins samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC.

Samkvæmt niðurstöðunni er heimilt að beita hernum ef Þýskaland stendur frammi fyrir stórkostlegri árás en ekki til þess að hafa stjórn á mótmælum.

Slík ákvörðun er þó háð samþykki ríkisstjórnar landsins. Hins vegar kemur fram í niðurstöðunum að þýski herinn megi eftir sem áður ekki skjóta niður farþegaþotur sem teknar hafa verið yfir af hryðjuverkamönnum

. Í slíku tilviki yrðu þýskar herþotur að fljúga í veg fyrir þotuna, skjóta viðvörunarskotum og neyða hana til þess að lenda.

Miklar takmarkanir á beitingu þýska hersins voru settar í stjórnarskrá Þýskalands eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar og valdatíma nasista vegna misbeitingar þeirra á þýska hernum. Þar kom fram að ekki mætti beita vopnuðum þýskum hermönnum á þýsku landsvæði.//////Þetta eru fréttir sem ég hefi talað um áður,að yfirleitt Þyskaland skuli vilja þetta sjálft eftir að hafa komið 2 heimstyrjöldum af stað!! ég er ekki að lítilækka Þyska þjóð þarna,en þetta er það sem maður óttast samt,að allt geti úr  böndum farið,þeir sína það að i ESB hver ræður og ,ég endurtek,þeir eiga ekki að vigbúast meira en orðið er!!!/Halli gamli


mbl.is Má beita þýska hernum í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband