Tugir manna að missa bótarétt/Þetta er rosalegt að hugsa um,hvað skal gjöra,S.J.S. hefur svör við öllu,ef ekki þá bara Jóhanna???

Tugir manna að missa bótarétt Innlent | mbl.is | 23.8.2012 | 20:01 Fjöldi langtíma atvinnulausra hefur fjórfaldast í Reykjanesbæ á tveimur árum. Á atvinnuleysisskrá í Reykjanesbæ í júlí eru 280 manns, eða 45% af heildinni, sem hafa verið þar í tvö ár eða lengur. Í júlí 2010 voru sjötíu í sömu stöðu. Þá hafa tugir manna þegar misst bótarétt

Framlög til fjárhagsaðstoðar hafa tvöfaldast frá áætlun og stefnir í að hún nemi 270 milljónum kr. Fjöldi langtíma atvinnulausra hefur fjórfaldast í Reykjanesbæ á tveimur árum. Á atvinnuleysisskrá í Reykjanesbæ í júlí eru 280 manns, eða 45% af heildinni, sem hafa verið þar í tvö ár eða lengur. Í júlí 2010 voru sjötíu í sömu stöðu.

Þá hafa tugir manna þegar misst bótarétt. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í vikunni. Meðal annars kom fram að 64 úr hópi fyrrnefndra 70 eru alfarið komnir á framfæri Reykjanesbæjar. „Staðreyndin er sú að atvinnulausir hafa flutt erlendis, sótt í nám, farið á örorkubætur eða fallið af atvinnuleysisskrá vegna þess að skráin hendir fólki út eftir þrjú eða fjögur ár,“ segir í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks.

Einnig segir að hópur langtímaatvinnulausra og að sjálfsögðu þeir sem hafa misst bótarétt sæki í auknum þunga til félagsþjónustu Reykjanesbæjar eftir lausnum. „Án atvinnu endar þessi hópur alfarið á framfæri ríkis og sveitarfélaga. Þannig er þegar orðið um 64 sem misst hafa atvinnubótaréttinn. Tugir manna til viðbótar eru á þessari leið, ef ekki rætist úr atvinnumálum.

Talið er að fjöldi atvinnulausra sem missir bótarétt í vetur geti numið þúsundum á landinu.“ Framlög til fjárhagsaðstoðar tvöfaldast Heildarfjöldi umsækjenda um fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins nam 179 manns í júlí.

Þeir sem enn eru á atvinnuleysisskrá eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð nema mjög sérstakar aðstæður krefji þess, en öðru gildi um þá sem hafa misst bótaréttinn. „Framlög til fjárhagsaðstoðar hjá Reykjanesbæ hafa tvöfaldast frá áætlun, og stefnir í 120 milljónir kr. yfir áætlun. Í heild stefnir í að fjárhagsaðstoð bæjarfélagsins nemi 270 milljónum kr.

Við stöndum undir því en óneitanlega væri æskilegra að þessir fjármunir nýttust fólkinu til atvinnuuppbyggingar,“ segir í bókuninni. Að endingu segir að öllum megi vera ljóst að atvinnuleysi skapist af starfaskorti. Þau fjölmörgu atvinnuúrræði sem bæjarfélagið hefur lagt drög að með fjárfestum, innlendum sem erlendum, geti gjörbreytt stöðunni á örfáum mánuðum. „Við höfum ítrekað hvatt til aukinnar samstöðu ríkisins við bæjarfélagið um þau verkefni.“////////Það voðalegt að lesa þetta!!! og talað er þessa daga oft á dag að atvinnuleyisið sé að minka!!! Þessi ríkisstjórn vinnur á móti öllu sem heitir framfarir framkvæmdir ig atvinna arðbær,bara ríki og sveitfég bæta við fólki,sem á réttu nafni eru afætur!!< hinna vinnandi,en á als gríns!!!!er þetta sjalskaparvíti að stórum hluta,spyrjum bara menn sem þetta vita,rikisstjórnin vill bara atvinnuleysi og aumingjaskap það er hennar mottó Kommana/Halli gamli


mbl.is Tugir manna að missa bótarétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1046586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband