Tillögu Sjálfstæðisflokksins vísað frá/Eftir höfðinu dansa limirnir????

TillöguFerðamenn mynda andarunga á Ráðhústjörninni Sjálfstæðisflokksins vísað frá Innlent | mbl.is | 4.9.2012 | 16:47 Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar vísaði tillögu Sjálfstæðisflokksins um mótmæli vegna fyrirhugaðrar skattahækkana á ferðaþjónustu frá á borgarstjórnarfundi í dag.

Segir borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins að með þessu bregðist meirihlutinn algerlega þessari vaxandi atvinnugrein sem fjöldi borgarbúa hefur lífsviðurværi sitt af.

Í dag var birt skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið varðandi áhrif hækkunar virðisaukaskatts á gistiþjónustu. Samkvæmt skýrslu KPMG gætu 40 þúsund ferðamenn hætt við að koma til Íslands „Í Reykjavíkurborg eru staðsett flest hótel og gistihús landsins og fjölmörg fyrirtæki byggja afkomu sína á annars konar þjónustu við ferðamenn.

Áhugi á uppbyggingu nýrra hótelrýma hefur gefið góða von og endurspeglað trú á bjarta framtíð greinarinnar en hækkun virðisaukaskatts á gistingu setur slík áform í uppnám. Hótel og gistihús starfa í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og hafa takmarkað svigrúm til þess að fleyta hækkunum sem þessum út í verðlagið.

Samkvæmt útreikningum KPMG mun fyrirhuguð hækkun bitna sérstaklega illa á ferðaþjónustuaðilum í Reykjavík, þurrka út þá framlegð sem nú er á rekstrinum og valda miklum taprekstri í greininni. Afleiðingar þess verða uppsagnir starfsfólks, hækkun á leiguverði, fækkun rekstraraðila og meiri hætta á undanslætti í greininni.

Auk þess má gera ráð fyrir að ferðamönnum fækki um allt að 40.000 á ári sem þýða minni tekjur fyrir rekstraraðila og ríkissjóð,“ segir í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. „Það gengur ekki að þeir borgarfulltrúar sem skipa meirihlutann í Reykjavík fyllist valkvíða þegar kemur að því að standa vörð um mikla hagsmuni borgarbúa og atvinnulífisins í Reykjavík.

Hér er augljóslega verið að hlífa ríkisstjórninni í stað þess að gegna því hlutverki sem þeir eru kjörnir til - að gæta hagsmuna borgarbúa. Meirihluti borgarstjórnar stendur ekki með þeim fjölda fólks sem hefur atvinnu af ferðaþjónustunni og það er miður,“ er haft eftir Júlíusi Vífli Ingvarssyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í tilkynningunni.///////Hér kemur þetta fram sem ég segi þarna áðan að "eftir höfðinu dansa limirnir", og það þíðir auðvitað að þeir verða að standa með Ríkisstjórn!!! þessir Bestu og Samfylking,þetta bara lýsir ástandinu þarna,og hver ræður,og hefi þeir skömm af Kommarnir þeir eru óuppalandi!!!!/Halli gamli


mbl.is Tillögu Sjálfstæðisflokksins vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband