Von á mikilli úrkomu norðantil Innlent | mbl.is | 9.9.2012 | 15:22 Veðurstofa Íslands varar við stormi, yfir 20 m/s, fyrst norðvestantil í dag en um allt land seint í kvöld og á morgun.
Á sunnanverðu landinu, frá Kjalarnesi austur að Austfjörðum, má gera ráð fyrir mjög hvössum vindhviðum við fjöll, allt að 40 m/s, og gæti skyggni spillst víða á fjallvegum á Norðurlandi. Þetta er byrjað á norðvesturhluta landsins, þar er orðið ansi hvasst, en svo færist þetta suður þegar líður á kvöldið og verður orðið ansi slæmt á miðnætti, segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við mbl.is og bætir við að lítil breyting verði í veðri á morgun.
Í nótt mun veður versna talsvert á austanverðu landinu og er gert ráð fyrir mjög slæmu veðri þar á morgun. Veðurstofan varar sérstaklega við vindhviðum sunnan Vatnajökuls, á Suðurlandi og Kjalarnesi. Þetta lagast í raun ekkert fyrr en á þriðjudaginn.
Vestantil dregur mikið úr þessu aðra nótt en á austanverðu landinu mun þetta í raun halda áfram þar til seinnipart þriðjudags, segir veðurfræðingur. Mun snjóa á fjallvegum Veðrinu mun fylgja mikil úrkoma norðantil en gert er ráð fyrir vaxandi norðaustanátt í dag, fyrst um landið norðvestanvert. Norðan 15-23 m/s síðdegis norðvestantil og slydda eða snjókoma á fjallvegum en rigning á láglendi.
Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands segist búast við erfiðri færð um tíma á fjallvegum á Norðurlandi, allt frá Holtavörðuheiði og austur á firði. Vert er að benda ökumönnum sérstaklega á að búast má við snjókomu á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði strax í kvöld en í nótt og á morgun gæti einnig byrjað að snjóa í Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði.
Þá er leiðin frá Lokinhamradal að Stapadal í Arnarfirði nú ófær í fjörunni við Skútabjörg. Fólk hugi að lausum munum Einnig er vert að brýna fyrir fólki að huga vel að lausum munum, sólhúsgögnum, trampólínum, útigrillum og öðru slíku svo koma megi í veg fyrir óþarfa tjón. Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 13-20 m/s seint í kvöld og norðan 10-18 m/s í fyrramálið.////////Við reyndir veðurmenn gerum ekki grín af svona aðvörunum,als ekki.þó stundum haf þær brugðist er það bara vinningur en fólk skal alltaf taka mark,það sakar engan!!!Eins og ég sagði í grein í gær ,maður tryggir ekki eftirá!!!! en við skulum bara með það sem þarf að gera bíða um stund ,og láta veðrið sjatna ekki spurning/Halli gamli
Von á mikilli úrkomu norðantil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.