15.9.2012 | 19:24
Launahækkunin röng forgangsröðun///RÁÐHERRA SEGI STRAX AF SÉR!!!
Launahækkunin röng forgangsröðun Innlent | mbl | 15.9.2012 | 12:33 Við erum með götótt vökvasett og bitlausar nálar. Það er ekki gott að vinna við þessar aðstæður. Við erum farin að spara of mikið á stundum og það bitnar á sjúklingunum, segir deildarstjóri á Landspítala. Hjúkrunarfræðingum finnst launahækkun forstjórans ekki vera forgangsröðun í þágu sjúklinga. segir Bylgja Kærnested, hjúkrunardeildarstjóri á hjartadeild Landspítalans.
Starfsfólk Landspítala hefur sætt sig við stóraukið álag undanfarin ár án þess að laun hafi hækkað í samræmi við það. Hjartadeildin er eitt dæmi, en stuttu fyrir kreppu voru tvær hjartadeildir á Hringbraut sameinaðar í eina og sjúkrarúmum fækkað um 10 niður í 32. Fyrir vikið þarf að nýta hvert pláss til hins ýtrasta og sjúklingar stoppa stutt við.
Sjúklingar útskrifaðir of snemma Bylgja Kærnested er hjúkrunardeildarstjóri á hjartadeild Landspítalans. mbl.is Við förum yfir útskriftir á hverjum einasta degi og erum oft og tíðum að mér finnst að útskrifa fólk of snemma. Um leið og fólk fer heim þá er nýr sjúklingur kominn í rúmið, það eru nánast aldrei laus rúm á hjartadeildinni, segir Bylgja.
Hjartadeild Landspítalans er sú eina á landinu og þangað koma því fárveikir hjartasjúklingar alls staðar að af landinu og liggja flestir í tvíbýli, en sumir í fjórbýli. Starfsfólki hefur einnig verið fækkað á vöktunum síðan deildirnar sameinuðust, en um leið fjölgar sífellt mjög veikum sjúklingum að sögn Bylgju. Ef einhver veikist á dagvinnutíma er ekki kallaður út aukastarfsmaður. Þá hleypur starfsfólkið bara hraðar. Ég segi að við séum með viðunandi mönnun, en ég má ekki fækka fólki neitt því þá er ég strax komin undir öryggismörkin.
Það getur verið hættulegt. Ég hefði viljað hafa fleira fólk á vöktunum. Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum hittust á tveimur fjölmennum fundum í vikunni til að ræða óánægju sína með stöðu mála. Mbl.is/Árni Sæberg Starfsmenn rýna í hverja krónu Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, sagði við mbl.is í vikunni að allt starfsfólk Landspítala, ekki bara forstjórinn, hefði lagt sig fram við að veita góða þjónustu samhliða niðurskurði. Mörgum þætti því ósanngjarnt að forstjóranum einum væri umbunað. Aðspurð segir Bylgja að starfsfólk hjartadeildar sé stöðugt vakandi fyrir hagræðingu.
Við höfum haldið sparnaðarfundi og ég hef leitað til starfsmanna varðandi hugmyndir um sparnað. Við spörum til dæmis lín við sjúklinga og verðmerkjum alla hluti, alveg niður í minnstu sprautur. Við gefum sjúklingum auðvitað öll þau lyf sem þeir þurfa, en notum bara það allra nauðsynlegasta. Það er engin sóun í gangi og horft í hverja einustu krónu.
Þjónustan við sjúklinga skerðist Í vor var göngudeild kransæðasjúklinga á Landspítalanum lokað til að spara eitt stöðugildi hjúkrunarfræðings. Af því að við erum að útskrifa fólk svo rosalega snemma þá vísuðum við mörgum á göngudeildina, en svo höfðum við ekki efni á að reka hana á Landspítalanum þannig að við erum að skerða þjónustu við sjúklinga. Landspítalinn hefur lagt áherslu á að efla göngudeildir en þrátt fyrir það varð að loka þessari deild. Það bitnaði verulega á hjartasjúklingum og okkur þykir það miður. Við sinnum allri bráðastarfsemi eins og við mögulega getum, en það er ýmislegt annað sem búið er að plokka af, og sjúklingar finna fyrir því, segir Bylgja.
Ein hliðin enn snýr svo að tækjabúnaðinum. Hjartadeild hefur afar lítið fjármagn frá Landspítalanum til endurnýjunar á tækjabúnaði og hefur því reitt sig á velunnara, eins og Hjartaheill - landssamtök hjartasjúklinga. Við erum þeim auðvitað ótrúlega þakklát, og við höfum lengi þurft að sætta okkur við tækjabúnað sem uppfyllir ekki ströngustu kröfur.
Það veldur starfsfólki álagi, því það er stöðugt verið að færa fólk til þannig að þeir veikustu fái besta tækjabúnaðinn. Óréttlæti og röng forgangsröðun Þessi starfsaðstaða er ekki til sóma fyrir hjúkrunarfræðinga og aðra starfsmenn að mati Bylgju, en það sem meira er þá bitnar hún á sjúklingum. Fólk er alveg til í að hagræða og fara vel með þá fjármuni sem við höfum, en núna finnst mér að fólk hugsi með sér: Jæja, ég er að spara alla daga á meðan það er til peningur fyrir einhverju öðru, eins og þessu.
Og fólki finnst það ekki vera réttlátt. Fram hefur komið á tveimur fjölmennum fundum hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum að launahækkun forstjórans Björns Zoëga um 20%, upp í 2,3 milljónir króna, hafi verið kornið sem fyllti mælinn, á meðan skorið sé niður á öllum öðrum vígstöðvum. Bylgja segir að þetta snúist ekki um forstjórann sem slíkan. Þetta snýst um forgangsröðun, og hún verður alltaf að vera út frá sjúklingnum. Hvað er best fyrir sjúklinginn. Hjúkrunarfræðingum finnst þessi launahækkun ekki vera best fyrir sjúklinginn.//////////Nóg er búið þegar að niðurlægja þetta blessað fólk þarna,þetta filti mælirin !!!!og er als ekki verjandi á engan hátt!!!Beit segir þetta manni að Ráðherran á að segja af sér ,og það strax engin miskunn með það,nóg er komið fyrir löngu!!!sama hvar er sagt þetta er óverjandi,og það er ráðist þessa dagana á flokkinn minn sjalfstæðisflokk,er það nú meira mál en að ráðherra skuli gera svona svífyrðu/Halli gamli
Launahækkunin röng forgangsröðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Botnlaus græðgi fjármálakerfisins á sér engin takmörk
- Hluti bílastæðis undir hraun: Ómögulegt að meta tjón
- Myndskeið: Stórbrotið útsýni af flugbrautinni
- Maskína: Framsókn í fallbaráttu
- Myndir: Hraunið komið inn á bílaplan Bláa lónsins
- Gosstöðvarnar ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn
- Vatnsleki hjá Brauð & co
- Má segja að þetta gos hafi þjófstartað
- Hraunið við bílastæði Bláa lónsins
- Stal munum úr starfsmannaaðstöðu
- Virknin dregist saman um 600 metra
- Rafmagn komið á: Engin viðgerð fyrr en eftir gosið
- Erum í miðri hrinu: Styttist í Eldvörp
- Fylla í skörð í varnargarði
- Ábyrgt stjórnvald hljóti að áfrýja
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.