Nýtt skipulag fyrir eldri höfnina okkar,mjög svo umdeilt!!!!!!!

Á ljósmyndum sést að miðborg Reykjavíkur var hafnarborg lengst af á 20. öldinni. Þar áður hafnlaust sjávarpláss.

Götur og sund teygja sig alveg að sjónum og húsin standa á hafnarbakkanum. Landfyllingar, plássfrek hafnsækin starfsemi og hönnun Geirsgötu sem hraðbrautar rufu þessi tengsl borgar og hafnar.

Breytt skipulag hafnarstarfseminnar, aukinn áhugi borgarbúa og ferðamanna á hafnarsvæðinu og breytt viðhorf til borgarumhverfisins hafa á undanförnum árum myndað ný tengsl.

Segja má að nú sé stöðugur straumur fólks niður að höfninni við verbúðirnar í Suðurbugt og að Hörpu yst á Austurbakka. Gamla hafnarsvæðið er að verða ný þungamiðja í borginni. Núna síðast var opnað þarna Hótel Marina í gamla Slippfélagshúsinu.

Flestir eru sammála um að þar hafi tekist vel til. Þetta er endurnýting eins og hún gerist best. Útlit hússins hefur lítið breyst nema það er allt frísklegra og fallegra en það hefur lengi verið.

Með nýju rammaskipulagi fyrir hafnarsvæðið, sem kynnt var í borgarstjórn í síðustu viku, er snúið frá þeirri stefnu, sem ríkti hér of lengi, að rífa allt sem fyrir er og byggja allt nýtt frá grunni.

Rammaskipulagið tryggir að gömlu verbúðirnar við Suðurbugt halda sér, allar sem ein, og spilhúsin í Slippnum.

Og Slippurinn sjálfur verður fyrst um sinn áfram á sínum gamla stað. Stungið hefur verið upp á að stígurinn norðan hússins fái nafnið Spilhúsastígur. Er það ekki samþykkt hér og nú? Ný hafnarhverfi Nýja rammaskipulagið skiptir svæðinu milli Sjóminjasafns og Hörpu í fjögur hafnarhverfi sem kallast Vesturbugt, Suðurbugt, Miðbakki og Austurbakki.

Skipulagið leggur áherslu á að hvert þessara hverfa hafi sinn karakter. Götur er hafðar fremur þröngar, eins í Grjótaþorpinu, og inn á milli húsanna eru hér og hvar lítil og nett torg.

Húsin eru stölluð og höfð í klassískum reykvískum skala: 3 til 5 hæðir. Form þeirra minnir svolítið á gamla netagerðarhúsið, Nýlendugötu 14, gegnt Hótel Marina. Það er 2 og 4 hæðir. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð: Íbúðir, verslanir, handverkstæði, skrifstofur, hótel, slippur, ferðaþjónusta, söfn, kaffihús, gallerí, veitingastaðir, fiskmarkaður og jafnvel útisundlaug.

Þarna verða greiðar leiðir fyrir fótgangandi vegfarendur og hjólandi. Bílastæði eru nær alfarið í bílakjöllurum og kveðið er á um að þau skuli vera að hámarki eitt á íbúð. Fyrirhuguð uppbygging er áfangabundin.

Reiknað er með að vestasta svæðið, milli Slipps og Sjóminjasafns, það er að segja Vesturbugtin, byggist fyrst upp. Þar gætu risið allt að 250 íbúðir.

Í fyrsta áfanga verður þó aðeins byggt að Slippnum, það er að segja í vestari hluta Vesturbugtar. Suðurbugt verður mikið til óbreytt. Þó er gert ráð fyrir að hægt sé að þétta það svæði örlítið með því að byggja hús á bílastæðinu milli Hafnarbúða og austasta hluta verbúðarinnar.

Það er í takt við nýja tíma að byggja hús fyrir fólk á afgangslóðum sem hafa verið nýtt sem bílastæði. Reiknað er með að ekki komi til uppbyggingar á Miðbakka fyrr en eftir að Vesturbugtin hefur byggst upp, eða er að minnsta kosti komin vel af stað. Þá hafa borgarbúar reynslu af þeirri tegund byggðar og geta betur dæmt um hvort þeir vilja halda áfram á sömu braut.

Vegna áforma erlendra aðila að byggja hótel samkvæmt gildandi deiliskipulagi á austasta svæðinu, Austurbakka, var ákveðið að taka það svæði út fyrir sviga. Þar verður til að byrja með áfram gildandi deiliskipulag.

Ekkert snobbhill Eitt mikilvægasta verkefnið í þeirri vinnu sem nú tekur við er að finna leiðir sem tryggja að nýju hafnarhverfin einkennist af félagslegum fjölbreytileika. Þetta mega ekki verða hverfi þar sem eingöngu sterkefnað fólk hefur efni á að búa. Markaðurinn, sem krefst auðvitað hámarksarðs af sölu lóða og íbúða, má ekki ráð ferðinni einn.

Samkvæmt nýsamþykktri húsnæðisstefnu eiga leiguíbúðir að vera að lágmarki 20% íbúða í nýjum hverfum. Ég tel að það hlutfall eigi að vera hærra í Vesturbugt. Rammaskipulaginu er ætlað að tengja aftur saman borg og höfn.

Til að það takist er lykilatriði að Geirsgötu verði breytt úr fráhrindandi hraðbraut í aðlaðandi borgargötu með rólegri umferð. Sú umbreyting ein og sér er mikilvægur liður í því að byggja upp borg fyrir fólk frekar en bíla. Hún er mikilvæg yfirlýsing um nýja stefnu í skipulagsmálum borgarinnar.

Uppbygging nýju hafnarsvæðanna samkvæmt þessu skipulagi sem hér hefur verið lýst fellur vel að markmiðum endurskoðaðs aðalskipulags borgarinnar til ársins 2030. Þar er gegndarlausri útþenslu borgarinnar snúið við. Borgin á ekki lengur að byggjast út á við heldur inn á við. Til baka/////////Var að lesa þetta og sé að mestu einn maður kommi eða allaballi fyrv. sem þykkst vera mikill skipuleggandi sennilega ættlar að ráða þessu meira og minna einn,og vinstra fólkið saman,sem er bílfjansamlegt T.D ein af m´+inum mönnum Gísli marteinn, og hjólandi 101 kaffilebjandi listafólk af stórum hluta,aldrei migið í saltan sjó en vill hertaka höfina okkar og allt þar í kring,semsagt ekkert tekið mark í hækkun sjáfar og norðan foráttubimi sem engu eyrir!!!það vill ekkert vernda jú loksins part af slippnum sem er annað elsta hlutafélag á landinu,stofnað 1902,því reddaði bara hótel marína!!!en þetta  með Geirsgötu og bifreyðar það bara gengur als ekki upp!!!!,Miklabrautin er orðin ofhlaðin Sæbrautin einnig!!!hvað varð um að taka Geirsgötu og part af sæbraut niður við hörpuna og hótelið,það var um það talað upphaflega!!en við sem erum bílandib eigum okkar rétt ekki spurning??þetta veður að hanna uppá nýtt,og það með vilja okkar gamlingjanna  einnig//Halli gamli 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband