2.10.2012 | 17:48
Teitur Guðmundsson læknir skrifar um nyja frumvarp umferðalaga!!!!
Teitur Guðmundsson skrifar: Á þessu þingi liggur nú fyrir að nýju frumvarp til umferðarlaga, sem er lagt fram af innanríkisráðherra, en það hefur verið í farvatninu um nokkurt skeið.
Tímabært hefur verið að endurskoða fyrri lög sem eru frá árinu 1987 með síðari breytingum og hefur nýtt frumvarp fengið umsagnir fjölmargra aðila og fer nú í umfjöllun í nefndum þingsins í framhaldi. Nokkurra breytinga er að vænta sem ekki hafa fengið mikla umfjöllun.
Eitt eru sektarákvæði og umfang slíkra sem innanríkisráðherra sjálfur tæpir á í pistli í Morgunblaðinu síðastliðna helgi. Þar fjallar hann um tekjutengingu sekta við umferðarlagabrotum sem væntanlega verður fjörug umræða. En það sem ég ætla að ræða eru ákvæði um mat á aksturshæfni einstaklinga af hálfu lækna og þá sérstaklega nýtt ákvæði um sérstakan trúnaðarlækni Umferðarstofu. Þetta ákvæði sætir nokkrum tíðindum og hefur Læknafélag Íslands meðal annars sent tvívegis umsögn sína um þetta frumvarp árin 2010 og 2011 til nefndarsviðs Alþingis, en ekki hefur mér vitanlega verið óskað eftir áliti félagsins nú, enda harla ólíklegt að það breytist mikið.
Í lögunum stendur orðrétt í 61. grein: Komi fram upplýsingar við meðferð sjúklings á sjúkrastofnun eða hjá heimilislækni um verulega skerta hæfni viðkomandi til aksturs skal gera trúnaðarlækni Umferðarstofu viðvart án tafar. Stendur þagnarskylda læknis því ekki í vegi. Eins fljótt og unnt er skal trúnaðarlæknir óska eftir því að hlutaðeigandi gangist undir læknisrannsókn þar sem metnir eru þeir þættir sem áhrif hafa á aksturshæfni viðkomandi.
" Hér er verið að gera læknum skylt að tilkynna skjólstæðinga sína til trúnaðarlæknis Umferðarstofu og setja lækna í ákveðið eftirlitshlutverk með almannahagsmunum. Hafa læknar áhyggjur af því að það grafi undan trúnaðarsambandi milli læknis og sjúklings. Slíkt hefur verið sannreynt í rannsóknum, meðal annars nú nýlega í grein í læknatímaritinu New England Journal of Medicine.
Í reglugerð nr. 830/2011 koma fram þær læknisfræðilegu lágmarkskröfur sem gerðar eru til þeirra sem ætla að stjórna vélknúnu ökutæki. Þær eru býsna ítarlegar og leyfi ég mér að efast um að eftir þeim sé farið í hvívetna hérlendis. Það er til dæmis óheimilt að endurnýja eða gefa út ökuleyfi fyrir þá sem eru háðir ávana- og fíknilyfjum eða nota þau að staðaldri, en mjög stór hópur notar slík lyf, þá einnig ávanabindandi lyf líkt og róandi eða svefnlyf og undir sama flokk falla þeir sem eru háðir áfengi.
Sjúklingar með alvarlegar hjartsláttartruflanir og hjartakveisu eiga ekki að fá leyfi svo og sjúklingar með vissar tegundir flogaveiki og alvarlegri stig sykursýki með ítrekaðri blóðsykurlækkun. Þetta er fyrir utan þá sem sökum hrumleika og hreyfiskerðingar hafa ekkert undir stýri að sækja. Samkvæmt frumvarpi til laga myndi þetta þýða að læknar á Vogi þyrftu að innkalla ökuleyfi sjúklinga sinna með því að vísa einstaklingunum til trúnaðarlæknis Umferðarstofu.
Hjartalæknar yrðu að taka afstöðu til ökuleyfis með sama hætti og svona mætti lengi telja. Það getur varla verið markmið laganna að í raun svipta svo stóran hóp fólks ökuréttindum, eða hvað? Margir telja að ökuréttindi jafngildi mannréttindum og er áhugaverð sú togstreita sem myndast þegar einstaklingur er metinn óhæfur af heilsufarsástæðum.
Það er þó mikilvægt að hafa góðan ramma og skýrar leikreglur varðandi ökuleyfisveitingu og sviptingu sem læknar geta og eiga að fylgja. Umræðu er þörf um þetta mikilvæga málefni og undirritaður sem trúnaðarlæknir Umferðarstofu telur að ekki séu öll kurl komin til grafar enn þá.////////Mikið þarf að endurskoða!!! þetta frumvarp ef þetta á að ganga svona ,er bara kannski um helmingur manna og kvenna sem ekki má keyra bíl!!Övgarnir er þarna all miklir og ekki hægt að fara svona aftan að hlutunum!!Eins og læknirin segir er þetta heiður hvers mans sem getur og vill aka bíl og jafnvel stolt sem ég kannski ekki má segja en það er það,og þarna þarf að gæta hófs,jú það er að taka bílpróf og gera það á réttum forsendum og svo í lagi að endurníja á 15 ára fresti til 70 ára svo tvö ár og eftir átrætt árlega!!!en þetta sem hann nefnir með að þessir sem taka meðul eigi þá að hætta að aka,það er persónubundið mjög,eyjlíft er hægt að segja og teygja svona að maður getur fengið hjartaslag og heilsbæðingu og svo framvegis,hjartslátaróregla er þvi miður mjög algeng,og menn aka bíl þessa vegna!!! enda allt í lagi að mati míns hjartlæknis,ég er búin að vera með slíkt i fleiri ár!!!en það sem þessi trúnaðlæknir umferðastofu segir það væri að æra óstöðugan að kæra allt það fólk sem er að mati þessara nýju reglna ekki hægt,auðvitað er ég ekki að segja að fólk sem ekki getur ekið vel vegna eitthvers galla verður bara að fá það sagt strax til skoðunar!!!endurskoðið þið lögin,Ögmundur!!!!/Halli gamli
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
- Viðræður í Karphúsinu ganga misvel
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.