Ráðstöfunartekjur jukust um 9,6%/Ein af skoðunum sem verið er að koma i hausin á okkur en er ekki sönn,ekki finnur maður það???

Ráðstöfunartekjur jukust um 9,6% Innlent | mbl.is | 9.10.2012 | 9:02 Ráðstöfunartekjur heimilanna hækkuðu Mynd 630377árið 2011 um 9,6% frá fyrra ári.

Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,3% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 5,1%.

Heildartekjur heimilanna hækkuðu um 6,7% frá árinu 2010 til 2011. Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum.

 Þar af var 7,4% hækkun á heildarlaunatekjum, 10,2% hækkun á tilfærslutekjum og 6,5% hækkun á rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja.

Heildareignatekjur lækkuðu um 17,4% milli ára. Hækkun heildareigna- og tilfærsluútgjalda nam 2,7% vegna 8,4% hækkunar tilfærsluútgjalda, en eignaútgjöld lækkuðu um 19,5% árin 2010 til 2011, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.////////Það er svo að við bara látum ekki segja okkur þetta að- ráðstöfunartékjur hafi hækkað??hvað er þarna inni!! það hefur allt þarna á þessum árum hækkað um 30-40% en laun ekki nema10-12% hvernig er það hægt að koma þesssu heim og saman,er ekki von á öðru en menn sér farnir að taka þessum tölum öllum með fyrirvara!!það eru fleiri en ríkisendurskoðun sem þarf að skoða að mínu áliti/Halli gamli


mbl.is Ráðstöfunartekjur jukust um 9,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er bara eins og allt annað í þessu samfélagi okkar það er verið að blekkja fólk með einhverjum tölum á blaði þetta hljóta að vera bara pantaðar niðurstöður.

Kristján Rafn (IP-tala skráð) 9.10.2012 kl. 11:55

2 Smámynd: Jörundur Þórðarson

Ef Hagstofan notar hér meðalheildarlaun þá hefur það mikil áhrif á allar niðurstöður þegar hálaunafólk fær hækkanir. Hér má nefna alla ráðherrana (launalækkun afturkölluð 1. október 2011 ), bankastjórana hjá Íslandsbanka og Arionbanka, veit ekki hvort auknar greiðslur hafi verið til slitastjórna. Þar fyrir utan var almenn launahækkun 1.júní 2011. Í öðru lagi detta inn lagfæringar á gengislánum. Niðurstaðan er að almenningur situr við óbreytt ástand en hálaunamenn brosa og gengislánaskuldarar hrósa happi. Ekkert tillit virðist tekið til verðbólgu sem étur upp hækkanir launþega.

Jörundur Þórðarson, 10.10.2012 kl. 03:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband