Gætu keypt íslensk sjávarútvegsfyrirtæki////Þetta gengur ekki als ekki!!!

Gætu keypt íslensk sjávarútvegsfyrirtæki Innlent | mbl.is | 17.10.2012 | 10:50 „Tekist er einmitt á um það í ESB-viðræðunum hvort afnema eigi takmörkun á eignarhaldi og fjárfestingum útlendinga í íslenskum sjávarútvegiJón Bjarnason, alþingismaður. hér á landi og beygja sig þar með undir kröfur ESB,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á heimasíðu sinni.

Þar vekur hann athygli á því að samkvæmt tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem kosið verður um í þjóðaratkvæði næstkomandi laugardag sé fellt út ákvæði sem er í núgildandi stjórnarskrá og heimilar stjórnvöldum að „takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fasteignaréttindi eða hlut í atvinnufyrirtæki hér á landi“ eins og segir í ákvæðinu en slík lagasetning er í gildi hér í sjávarútvegi og felur í sér að erlendir aðilar megi ekki eiga meirihluta í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.

 „Með því að afnema þetta ákvæði úr stjórnarskrá opnar það verulega fyrir erlenda aðila til að fjárfesta í fasteignaréttindum hér á landi og erfiðara en áður að setja þeim skorður með lögum,“ segir Jón og bætir því við að málið vegna áhuga kínverska fjárfestisins Huang Nubo á því að kaupa jörðina að Grímsstöðum á Fjöllum ætti að sýna að frekar ætti að þrengja en rýmka þennan rétt útlendinga.

„Að mínu mati er mjög mikilvægt að halda þessu ákvæði í stjórnarskránni sem öruggri stoð fyrir setningu laga um fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi,“ segir Jón ennfremur./////////Þetta ákvæði og mörg önnur má ekki hreif við,það er ekki spurning að svona aðferðir verða ekki liðnar,það er skrítið að jón skuli ekki segja sig úr flokknum V.G hann á bara ekkert heima þar!!!!það er allt þarab sem má sko'ða ad Alþingi en ekki bindandi alls ekki/Halli gamli P/S segjum bara Nei við ákvaði no 1 ///Halli gamli


mbl.is Gætu keypt íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband