Varð að stela Þessu frá Pressunni/Vonandi stenst þetta!!!!

ég og blakkur21. okt. 2012 - 09:00 Verulegar framfarir framundan í rafgeymatækni - drægi rafbíla mun stóraukast

Tvær sænskar vísindakonur, doktorsnemar við konunglega sænska tækniháskólann; Matilda Klett og Marianne Giesecke vinna að því að þróa aðferð við að stórbæta rýmd og afköst líþíumrafgeyma.

Takist þetta mun drægi rafbíla stórlega aukast og miklu sjaldnar þarf að stinga þeim í samband en nú þarf.

Takmarkað drægi hefur alla tíð verið og er enn helsti þröskuldurinn í vegi rafbílanna þrátt fyrir verulegar framfarir undanfarin ár.

Vísindakonurnar og rannsóknahópur þeirra hafa fundið aðferð við að rýna í leiðni líþíumjóna í rafhlöðum sem talin er vera forsenda þess að stórbæta geymslurýmd og afköst geymanna og bæta endingu þeirra auk þess mjög verulega.

Frá þessu er greint á vef FÍB. „Vandinn við rafhlöðurnar er að hver þeirra er lokað kerfi. Hægt er að mæla straum og spennu í þeim en hingað til hefur ekki verið hægt að skoða hvernig jónirnar hreyfast innan hins lokaða kerfis.

Það er hinsvegar þessi hreyfanleiki jónanna sem er sjálf forsenda afkasta og orkurýmdar rafhlöðunnar,“ segir Matilda Klett við sænska Auto Motor & Sport.

Hún segir að rannsóknahópurinn hafi fundið aðferð til að skoða, skilja og skilgreina þessar jónahreyfingar sem eru sjálf forsenda þess hvernig rafhlaðan virkar yfirleitt.

Næsta stigið er að sögn hennar það, að samhæfa þessa nýju skoðunartækni öðrum rannsóknum á rafhlöðum og í framhaldinu að velja réttu hráefnin í bæði elektróður og elektrólýta fyrir rafhlöðurnar.

Innan raunvísindaheimsins þykir þessi umrædda uppfinning sænsku vísindakvennanna mjög mikilvæg og merkileg. Það segir sína sögu að vísindaleg grein þeirra um uppfinninguna hefur þegar birst í hinu virta vísindatímariti Journal of the American Chemical Society.//////////ÉG bara vona að þetta sé þessa virði,við eigum svo mikið undir þessu Íslendingar að við bíðum spennt eftir framhaldi!!vinandi að þetta sé ekki feyk og við fáum fljótlega að nota þetta,mundi borga sig fljótt upp/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband