Fermingarbörn ganga í hús///Þetta gott mál og þarf,en ríkisstjórn okkar sér til þess,að íslendingar þurfa svona hjálp,einnig margir!!!

FermingFermingarbörn safna til vatnsverkefna í þremur Afríkulöndum.arbörn ganga í hús Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 8:53 Fermingarbörn úr 65 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús á tímabilinu frá og með deginum í dag til 6. nóvember, milli kl. 17.30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þrem löndum Afríku: Malaví, Úganda og Eþíópíu.

Starfsfólk kirkjunnar fræðir um 3.000 fermingarbörn um aðstæður í löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. Mörg þeirra hittu Innocent Kaphinde og Doniu Phiri frá Malaví sem heimsóttu um 2.000 fermingarbörn um allt land og sögðu frá lífi sínu og aðstæðum.

Í fræðslunni heyra börnin um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem veita hreint vatn sem gjörbreytir lífinu til hins betra.

Með þessu fá fermingarbörnin tækifæri til að láta til sín taka og gefa Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni. Þetta er í 14. sinn sem söfnunin er haldin.

Í fyrra söfnuðu fermingarbörn 8 milljónum króna. En samtals hafa þau í gegnum árin safnað um 75 milljónum króna til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar, segir í tilkynningu.///////////Ekki gerir maður lítið úr kirkjunni okkar,als ekki,þetta dásamlegt að gera!!en í dag er komið svona fyrir mörgum íslendingum.því miður alla daga er verið að selja ofan af fólki,og það að missa allt sitt, og eiga ekki fyrir mat,og erum með ríkistjórn sem horfir á þetta allt en bara verndar fjármagnið,kemur ekki nema neikvætt að þessum málum,það sáum við í Silfrinu í gær mjög vel!!!/Halli gamli


mbl.is Fermingarbörn ganga í hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband