Snúa vörn í sókn/Hvað eru virkilega að koma kosningar???

 

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, Katrín...

Snúa vörn í sókn“ Innlent | mbl | 8.11.2012 | 16:49 Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og varafomaður Vinstri grænna, segir að fjárfestingaráætlun fyrir árin 2013-2015 sýni „

það svigrúm sem við núna höfum til að skapa innspýtingu í samfélagið.“ Áætlunin verði m.a. til þess að fjölga störfum. „Með þessari áætlun erum við í raun og veru að horfa til þess að snúa vörn í sókn,“ sagði Katrín á blaðamannafundi í morgun.

Ekki væri verið að setja öll eggin í sömu körfu heldur væri verið að horfa til ólíkra leiða. Hún tók jafnframt fram að tillögurnar kæmu nú til kasta Alþingis.

Hún segist sjá mörg sóknarfæri hvað varðar skapandi greinar hér á landi sem á undanförnum árum hafi vaxið og orðið mjög stór atvinnuvegur með tiltölulega litlu framlagi opinberra aðila.

Í þessum geira sé verðmætasköpunin mikil og það sjáist til að mynda á því að velta þessara greina sé um 580-590 milljarðar kr. en þar af hafi framlög hins opinbera verið 22-24 milljarðar.

„Við áttum mjög góðan fund með þeim geira núna fyrr í haust, bara fyrir nokkrum vikum, og vorum að kynna stefnumörkum í því hvernig við viljum byggja upp atvinnuveginn skapandi greinar. Samvinnu mennta- og menningamálaráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og utanríkisráðuneytis.

Það má segja að þessar áherslur byggi ekki síst á þeirri stefnumörkum þar sem lögð er áhersla á verkefnasjóði.

T.a.m. á sviði hönnunar, sem er mjög vaxandi geiri og hefur fengið lítið opinbert fjármagn hingað til, sviði myndlistar, sviði tónlistar, á sviði útflutnings á tónlist - þar auðvitað eigum við eins og þið öll þekkið alveg gríðarleg sóknarfæri, [sviði] bókmennta þar sem við erum þegar erum búin að vinna stórvirki á bókasýningunni í Frankfurt. Við erum ennþá að sjá áhrifin af því.

Svo auðvitað á sviði leiklistar og handverks og kvikmyndanna,“ segir menntamálaráðherra. Krónurnar skila sér margfalt til baka/////////////það er svo að þetta fólk vaknar þegar koma kosningar ekki fyrr þá á að gera það sem gera átti strax ,þetta fólk er ekki í lagi !!!og verður ekki engin hætta á því bara stopp strax og lýgini líkur///Halli gamli


mbl.is „Snúa vörn í sókn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já það er greinilega að koma kosningar hjá þessu fólki...

Að ætla að nokkur trúi orðum þeirra er fyrra í ljósi þess að þau lugu sig til valda á þeim orðum að skjaldborg ætluðu þau sér að slá utan um heimili og fyrirtæki Landsmanna, það átti ekki að verða þjóðarinnar að borga óreiðuskuld eins og Icesave...

Það sem þau eru búinn að afreka er að koma heimilum Landsmanna á hausinn sem og flestum fyrirtækjum, þau eru búinn að skuldsetja þjóðina upp í rjáfur og að ætla að nokkur trúi þessum orðum þeirra núna er ekkert annað en bilun út af fyrir sig, en þetta sýnir okkur líka að fókusinn eru þau ekki með þar sem hann ætti að vera, vera á Þjóðfélaginu í dag enda ber allt Þjóðfélagið merki þess að hafa lent í höndum og klóm ræningja liggur við að ég segi síðustu 4 ár sérstaklega... 

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 8.11.2012 kl. 20:20

2 identicon

LOL....

Ekki veit ég af hverju VG fólk er að pæla í þessu.

Ekkert þeirra mun koma nálægt stjórn landsins næstu áratugi.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 8.11.2012 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046584

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband