30.11.2012 | 20:45
Lögreglan biðst afsökunar á facebook/engin sköm að viðurkenna mistök!!!
Lögreglan biðst afsökunar á facebook Innlent | mbl.is | 30.11.2012 | 19:14 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjarlægði síðdegis í dag frásögn sem birt var um útkall á höfuðborgarsvæðinu nýverið.
Færslan fékk misjöfn viðbrögð og var lögregla m.a. gagnrýnd fyrir að fjalla af léttúð um konu sem virðist hafa orðið fyrir kynferðisáreiti og holdafar hennar.
Í færslu lögreglunnar var sagt frá því þegar lögreglan var kölluð að heimahúsi þar sem karlmaður á miðjum aldri hafði verið læstur úti af gestkomandi konu, sem varnaði honum inngöngu.
Lögregla segir að allt hafi þetta verið dálítið málum blandið. Konan útskýrði mál sitt svo að hún hefði hitt manninn í miðborginni skömmu áður og þegið heimboð hans.
Eftir að í íbúðina kom hafi framkoma mannsins hins vegar verið allt annað en herramannsleg. Fannst konunni maðurinn bæði of nærgöngull og fjölþreifinn að því er fram kom í færslu lögreglu.
Samskipti þeirra enduðu þannig að hún lokaði hann úti. Þegar lögreglumenn bar að neitaði konan fyrst að hleypa þeim inn og sagðist lögreglu svo frá að reynt hefði verið að tala um fyrir henni en hún hafi verið hin þverasta.
Kom fram að ekki hefði veitt af þremur lögreglumönnum til að ýta upp hurðinni því konan hafi verið þrekvaxin í meira lagi.
Lögreglan íhugar vinnubrögðin Viðbrögðin við færslunni voru misjöfn og hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nú fjarlægt hana og beðist afsökunar
. Lögreglan tekur að sjálfsögðu alvarlega þær athugasemdir sem settar voru við frásögnina. Jafnframt íhugar lögreglan vinnubrögð sín hér á fésbókinni og mun leitast við að gera betur, enda vill hún síst af öllu misbjóða fólki, segir í færslu á facebook-síðu lögreglu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu reið á vaðið með notkun samfélagsmiðla og hefur þótt takast mjög vel til, enda hafa önnur lögregluembætti fylgt í kjölfarið.
Eftir því sem mbl.is kemst næst er þetta í fyrsta sinn sem lögreglan fjarlægir færslu vegna neikvæðra viðbragða.//////////////Það er öllum heilbrigt og gott að viðurkenna mistök sín,og eru bara meiri menn fyrir,ekki spurning,og það ekki síður löggæsluna en öðrum,við virðum þetta mikils/Halli gamli
Lögreglan biðst afsökunar á facebook | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Halli.
Ég tel lögregluna persónulega ekki hafa gert nein mistök en skil mjög svo hennar afstöðu sem stofnun að taka niður blogg ef fólk er viðkvæmt fyrir svona sögum að einhverju leyti. Ég verð að játa að ég sé ekkert neikvætt við að kona sé þrekvaxinn eða stór. Þrekvaxinn les ég sem sterk. Þrjósk, ég veit ekki til þess að það hafi nokkurn tímann verið talið galli í Íslensku samfélagi að vera þrjóskur. Ég stend við mínar skoðanir og get verið helvíti þrjóskur nema mjög góð rök komi á móti. Sömuleiðis þú miðað við allt blogg þitt.
Með bestu kveðju
Kristján Haukur
Kristján H Magnússon (IP-tala skráð) 1.12.2012 kl. 00:33
Kristján H. ég virði þínar skoðanir,ekki spurning!!samt í mínum pisli er ég er aðalega að segja að afsökun er mannbætandi!!hún er það ,þó menn séu ekki sammála sökini/Kveðja
Haraldur Haraldsson, 1.12.2012 kl. 14:34
Finnst ykkur ekki samt skondið að fréttamaður mbl.is, sem fjallar um málið hér, skuli endurtaka lýsingu á konunni í sömu andrá og hann segir frá ástæðu þess að lögreglan fjarlægði sína færslu ?
Anna Dóra Gunnarsdóttir, 2.12.2012 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.