6.12.2012 | 09:35
Útgjöldin 443 þúsund á mánuði//En hvað á að laga þetta eða hvað,þetta hafi ekki nema sumir als ekki???
Útgjöldin 443 þúsund á mánuði Innlent | mbl.is | 6.12.2012 | 9:01 Neysluútgjöld á heimili árin 20092011 voru 443 þúsund krónur á mánuði og hafa aukist um 0,4% frá tímabilinu 20082010.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilis voru rúmar 514 þúsund krónur á mánuðiNeysluútgjöld á heimili árin 20092011 voru 443 þúsund krónur á mánuði og hafa aukist um 0,4% frá tímabilinu 20082010. Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,0% frá 2010 til 2011 og hafa heimilisútgjöldin dregist saman um 3,5% að teknu tilliti til verðbreytinga.
Á heimili búa að meðaltali 2,4 einstaklingar. Þetta kemur fram í rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna á árunum 2009-2011.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni voru 514 þúsund krónur á mánuði. Ráðstöfunartekjur flestra hópa voru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali 86% af ráðstöfunartekjum.
Tekjur heimila, sem þátt tóku í rannsókninni 20092011, voru 1,1% hærri en tekjur heimila í rannsókninni 20082010. Ráðstöfunartekjur á heimili hækkuðu um 0,7% umfram útgjöld.
Í rannsókninni nú eru neysluútgjöld að meðaltali 86% af tekjunum en voru 87% á tímabilinu 20082010. Tekjur þess fjórðungs heimila sem hæstar tekjur hafði voru að jafnaði 147% hærri en þess fjórðungs sem lægstar tekjur hafði.
Útgjöld þeirra tekjuhæstu voru 63% hærri en tekjuminnsta fjórðungsins. Sá fjórðungur heimila sem mest útgjöld hafði eyddi 148% meira en sá fjórðungur sem hafði minnstu útgjöldin.
Tekjur þeirra útgjaldahæstu voru 30% hærri en tekjur heimilanna í útgjaldalægsta fjórðungnum. Í úrtaki voru 3.471 heimili, 1.799 þeirra tók þátt í rannsókninni og var svörun 51,8%.///////////////Þetta eigum við að gleypa sem meðaltal,það er bara ekki svona als ekki,þetta synir ekki hópinn sem býr viðsultarkjör og það er villan við þessi meðaltöl sem alltaf er verið að birta ,nei takið þetta öðruvísi svo rétt útkomi komi fram//Halli gamli
Útgjöldin 443 þúsund á mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rétt útkoma? Eru útkomurnar ekki jafn margar og heimilin eru mörg? Er einhver ein réttari en önnur?
Meðaltal er bara ein aðferð til að gefa einhverja lýsingu á hópnum, svo lengi sem við erum að bera saman meðaltal við meðaltal á milli tímabila getur það gefið vísbendingar um þróun í samfélaginu heilt yfir. Í rannsókninni er einnig að finna fjórðungsmörk og miðgildi fyrir þá sem vilja kafa dýpra í efnið.
Sveinn (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 09:52
Alltaf gott að réttlæta voðaverkin, það segir eitthvað um þig.
Halldóra (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 11:22
well ég hef 150Þ útborgað og þarf að sjá fyrir 5 börnum og fæ engar barnabætur
Magnús Ágústsson, 6.12.2012 kl. 11:43
Er ekki verið að tala um neysluútgjöld þarna? Ekki húsnæðiskostnað? Húsnæðiskostnaður er afborgun/leiga, fasteignagjöld, hússjóður, rafmagn og hiti og er oftast vel á annað hundrað þúsund á mánuði. Mér þætti gaman að vita hvað er inni í þessari tölu fyrir þessar 2,4 manneskjur sem meðalheimilið er skv. þessu.
Margret S (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 14:08
Meðaltal er meðaltal. Það er ekki verið að réttlæta neitt.
"nei takið þetta öðruvísi svo rétt útkomi komi fram"
-
Hvernig eru þessar tölur vitlausar? Hvernig mundir þú breita stærðfræðini, sem er einfaldlega heildarupphæð deild með fjölda, svo það sýni það sem þú telur vera rétta tölu?
Kristinn (IP-tala skráð) 6.12.2012 kl. 15:00
Sko öll þarna eða þeirs em eru að verja meðatöluna hun segir okkur ekki að stór hluti þessar sem eru i henni er á hungurmörkum og búin að missa allt sitt als ekki,eða viljið þið verja það??????Veðum að hafa brjósvit einni!!!/Kveðja
Haraldur Haraldsson, 6.12.2012 kl. 16:21
Í fréttinni segir: „Í úrtaki voru 3.471 heimili, 1.799 þeirra tók þátt í rannsókninni og var svörun 51,8%“.
Af hverju svara ekki þessi rúm 42%? Áhugaleysi? Leti? Tómlæti? Kæruleysi? Sinnuleysi?
Þegar svörun er ekki betri, þá er veruleikinn að öllum líkindum annar.
Guðjón Sigþór Jensson, 6.12.2012 kl. 18:03
Ég þekki ekki neitt svona heimili.
Guðmundur Ásgeirsson, 7.12.2012 kl. 01:23
Mjög líklegt er að mun fleiri heimili nái ekki meðallaunum. Hins vegar eru allir útreikningar þar sem byggt er á meðaltali meira og minna út í hött. Þannig ætti maður sem er með aðra löppina í sjóðandi vatni en um hina með hina umlukna ísklump sem næst -26C að líða nokkuð vel svona meðaltalslega séð!
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 7.12.2012 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.