Gæslan nýtur mest trausts///Þessar könnunar MMR eru ekki í lagi,að mínu álti,als ekki!!!

Gæslan Varðskipið Þór nýtur mest trausts Innlent | mbl.is | 13.12.2012 | 15:53 Landhelgisgæslan nýtur mest trausts meðal almennings í könnun sem MMR gerði á trausti almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála.

Útlendingastofnun nýtur minnst trausts. Alls sögðust 87,3% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar.

Traust til Landhelgisgæslunnar hefur aukist nokkur frá því í febrúar 2011 þegar 80,8% sögðust bera mikið traust til hennar.

Traust á dómskerfinu í heild hefur aukist nokkuð og sögðust 44,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til þess, borið saman við 33,6% í febrúar 2011.

Í könnuninni nú mældist Ríkislögreglustjóri njóta trausts 64,9% þeirra sem tóku afstöðu og 50,7% sögðust bera mikið traust til Ríkissaksóknara.

Traust til Hæstaréttar hækkar nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 38,8% sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 53,2% nú.

Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem bera lítið traust til Hæstaréttar minnkað talsvert á milli mælinga, úr 34,7% í febrúar 2011 í 19,5% nú.

Traust til Útlendingastofnunar eykst nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 22,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 27,4% nú.

til embættis sérstaks saksóknara hefur dregist nokkuð saman frá því í febrúar 2011 þegar 59,8% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar borið saman við 51,8% nú./////////////Ég segi og skrifa að þessar kannanir þessar sem þetta fyrirtæki MMR eru ekki að mínu áliti mikið að marka,það sagði okkur í fréttu í gær að RÚV væri langs trúverðugasti fjölmiðillin,sem er svo mikil della að það hálfa væri nóg!!svo hlutdræg nú í þessari pólitík að allir hljóta að sjá!!!svo þetta þarna sem talað erum um eins og Landhelgisgæslan besta fólk þarna en skipin meira og mynna landföst og vélin leigð og skip einnig!!! og allt eftir þessu þarna///Halli gamli


mbl.is Gæslan nýtur mest trausts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1046585

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband