Fjárlagafrumvarpið samþykkt//við erum búin að fá nóg skattmann!!!!!


Mynd 583662Fljálagafrumvarpið samþykkt Innlent | mbl.is | 20.12.2012 | 15:04 Þriðju umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar vegna ársins 2013 er nú lokið á Alþingi og var frumvarpið samþykkt með 28 atkvæðum.

26 þingmenn sátu hjá og 9 voru fjarstaddir. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar sátu hjá auk Lilju Mósesdóttur, þingmanni Samstöðu, Atla Gíslasonar, utan flokka, og Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þingmenn stjórnarflokkanna samþykktu frumvarpið hins vegar ásamt Guðmundi Steingrímssyni og Róberti Marshall, þingmönnum Bjartrar framtíðar.

Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á þingi í dag að fjárlögin væru sóknarfjárlög þar sem þau gerðu Íslandi kleift að snúa vörn í sókn og Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, sagði að með fjárlögunum væri nánast náð jafnvægi í fjárlagahalla ríkissjóðs. Stjórnarandstöðuþingmenn sögðu hins vegar að um kosningafjárlög væri að ræða og að ljóst væri að fjárlagahallinn yrði miklu meiri en gert væri ráð fyrir.

Þá voru vinnubrögðin við frumvarpið harðlega gagnrýnd. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að engar breytingartillögur hefðu borist frá Sjálfstæðisflokknum við fjárlagafrumvarpið þrátt fyrir að þingmenn hans hefðu boðað breytingar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði því til að tillögur flokksins snerust um að lækka álögur á fyrirtækin og heimilin í landinu og um þær yrðu greidd atkvæði í þingkosningunum næsta vor./////////////////þetta sínir okkur í reynd að það er okkur ekki í hag sem mynna höfum þetta frumvarp,við erum blóðmjólkuð eins og hægt er og á hverju eigum við að lifa,ég bara spyr þetta kommahyski sem segist vera að verja alþýðuna??hvar er það þarna ekki til nema í félagsmálapökkum til að sýnast!!!sem næsta ríkisstjórn á að taka við ,þessi endemi á sér engan samstað og er bara til að flýta fyrir fátækt og umkomuleysi fólks í hrönnum,bara skríðið og biðjið um  ölmusu,það er mottóið/Halli gamli

 


mbl.is Fjárlagafrumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband