Ísland og Írland á svipuðum stað/ekki eg þessu alveg sammála!!!!

Ísland
Skuldatryggingarálag Írlands er að verða svipað og... Ísland og Írland á svipuðum stað Viðskipti | mbl.is | 8.1.2013 | 13:13 Skuldatryggingarálag á Ísland og Írland er nú svipað, en þróun þess hefur verið býsna ólík hjá löndunum tveimur undanfarin ár og endurspeglar mismunandi viðbrögð við kreppunni og ólíkar aðstæður að sumu leyti.

Greiningardeild Íslandsbanka fór í morgunkorni sínu yfir ástandið í löndunum tveimur. en uppgangur Íslands hefur meðal annars verið hraðari meðan við búum við fjármagnshöftin, en Írar njóta hins vegar stöðugs gengis og lágrar verðbólgu.

Segir í greiningunni að skuldatryggingarálagið til 5 ára sé 173 punktar á Ísland en 197 punktar á Írland. Álagið á bæði löndin hefur hins vegar slegið yfir 1.000 punkta á síðustu árum.

Álagið hér á landi fór yfir 1.000 punkta í októberbyrjun 2008, en 1.000 punkta álag jafngildir því að greiða þurfi 10% af höfuðstól skuldabréfs árlega fyrir að tryggja það gegn greiðslufalli.

Álagið fór hins vegar að lækka í kjölfar þess að efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og stjórnvalda var hleypt af stokkunum. Saga Írlands er nokkuð önnur að sögn greiningardeildarinnar.

Er það meðal annars vegna þess að stjórnvöld ákváðu að bjarga bönkunum og þar sem Írar höfðu ekki sjálfstæðan gjaldeyri sem aðstoðaði við að auka samkeppnishæfni.

Skuldir ríkissjóðs Írlands fóru við björgun bankanna úr 25% af vergri landsframleiðslu árið 2007 í nærri 120% um síðustu áramót.

Þriðjungur þessara skulda er til kominn vegna björgunar ríkisins á írsku bönkunum. Þá gátu Írar ekki reitt sig á fall fljótandi gjaldmiðils til þess að auka samkeppnishæfi landsins og beina eftirspurn inn á við. Álag Írlands fór því hækkandi á sama tíma og álagið á Ísland lækkaði, og fór það yfir 1.000 punkta í júlí 2011, rúmlega tveimur árum eftir að álagið á Ísland náði síðast slíkri tölu.

Írland leitaði á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í árslok 2010, tveimur árum á eftir Íslandi. Aðstæður hafa þó batnað nokkuð á Írlandi að undanförnu.

Efnahagsáætlun sjóðsins og írskra stjórnvalda hefur í megindráttum gengið að óskum, og er fyrirhugað að hún renni sitt skeið í lok þessa árs.

Hægur vöxtur tók við af samdrætti árið 2011 og hefur ríkt síðan. Samfara þessu hefur skuldatryggingarálag á írska ríkið lækkað allhratt, sér í lagi eftir að ríkið sótti á ný fé á markaði með útgáfu skuldabréfs í júlí síðastliðnum.

Greiningardeildin segir að fróðlegt verði að fylgjast með þróun efnahags og skuldatryggingarálags í löndunum á næstunni.

Þróunin á Íslandi er um margt dæmigerð fyrir land þar sem kostir fljótandi gjaldmiðils eru nýttir til þess að hraða aðlögun efnahagslífsins.

Sá böggull fylgir hins vegar skammrifi að verðbólga hefur verið umtalsverð og landið situr enn í viðjum gjaldeyrishafta sem ekki er útséð um hvenær eða jafnvel hvort verði aflétt í fyrirsjáanlegri framtíð.

Írar hafa hins vegar þurft að fara seinfarnari og um margt erfiðari leið að því marki að koma á jafnvægi í hagkerfi sínu og ríkisfjármálum.

Þeir státa á hinn bóginn af lítilli verðbólgu, stöðugleika í gengi gagnvart flestum viðskiptalanda sinna og óheftu flæði fjármagns til og frá landinu. Tíminn mun svo leiða í ljós hvort leiðin var á endanum farsælli, sú íslenska eða hin írska.////////////////////þetta er kannski hægt að reyna að líkja saman en það tekst ekki að öllu leiti,als ekki ólíkt höfumst við að,við erum ekki og erum ekki að rara í ESB og ættum að fara einnig úr EES ekki spurning,að þurfa að hlíða þessu reglufargani er alltof dýrt fyrir okkur!!ef við værum með Ríkisstjórn sem tæki þetta alvarlega og gerði hlutina rétt,skapaði framkvæmdir af auðlindum okkar og atvinnu svo fólkið geti borgað skattana sína,og ríkið aftur skuldir okkar því tollar of gjöld og virðisauki mundi aukast um helming ekki spurning,þá erum við sambærileg við Írland né hin ver settu!!!eða hvernig ætla þessir  umkvefi sinnar í hvaða flokki sem þeir eru,þó vextir í V.G.þar eru bara menn stór skemmdir af þessum stoppum á öllu,og ekkert má gera!!en kapp er best með forsjá ekki heldur öfganna hinu megin,ekki að verja þá,en við eigum að virkja mikið meira og gera það vel og öruggt,og selja rafmagnið dýrara til erlendra fjárfesta!!!og gera að skildu að við vinnum  úr álinu allt sem við getum,og svo er ekki rétt að við getum ekki veitt meira,og unnið það mikið meira hér heima!!!Það er nú það þegar birtar eru svona fréttir að það ber að segja ástæðuna,og hvernig megi leistana,það er hægt ekki spurning,svo með þessa verðbólgu hún er heimagerð af seðlabanka vorum,og tökum hana bara af meðan verið er að vinna sig ofan af þessu öll,eftir það verður hún engin,og við fáum jákvæða vexti!!!/Halli gamli


mbl.is Ísland og Írland á svipuðum stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband