Sjö umferðarslys í höfuðborginni Innlent | mbl.is | 15.1.2013 | 13:43 Sjö umferðarslys urðu á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið.
Að sögn lögreglu eru þrjú þeirra talin mega rekja til ógætilegs aksturs í hálku, þar sem ökumaður ók of hratt miðað við aðstæður.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðin segir því óhætt að benda ökumönnum á að þegar hálka er á vegum eða gera megi ráð fyrir slíkum aðstæðum, ber ökumönnum að aka hægar en ella og gæta ítrustu varkárni til að koma í veg fyrir meiðsl, hvort heldur er á þeim sjálfum eða öðrum.
Ljóst er, miðað við upplýsingar lögreglu, að hægt hefði verið að koma í veg fyrir öll þau sjö slys sem urðu í síðustu viku, með meiri aðgæslu ökumanna og tillitssemi gagnvart öðrum vegfarendum.
Samkvæmt tölum lögreglu varð að meðaltali eitt slys í umferðinni, þar sem slys urðu á vegfarendum, á degi hverjum árið 2012.
Lögregla segir að óhöppin megi oftar en ekki rekja til þess að ökumenn sýni ekki nægilega aðgæslu í umferðinni. Árið 2013 er markmiðið að fækka umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu um helming frá því sem var í fyrra og í því skyni ætlar lögregla vikulega að kynna upplýsingar um fjölda slysa.
Umferðarslys síðustu viku urðu með eftirfarandi hætti: Mánudaginn 7. jan. um klukkan 15 var bifreið ekið á ljósastaur í Stekkjarbakka við Álfabakka.
Tveir voru í bifreiðinni og var farþegi fluttur á slysadeild til aðhlynningar, talsvert slasaður.
Talið er að rekja megi orsök slyssins til þreytu ökumanns, en grunur leikur á að hann hafi sofnað við akstur. Fimmtudaginn 10. jan. um klukkan 15 valt vörubifreið með saltfarm í hringtorgi á Reykjanesbraut við Lækjargötu.
Ökumaður var einn í bifreiðinni. Hann leitaði aðhlynningar á slysadeild. Orsök slyssins er rakin til of hraðs aksturs í hringtorginu.
Fimmtudaginn 10. jan. um klukkan 17 var ekið á gangandi vegfaranda á gangbraut á Kleppsmýrarvegi við Súðarvog. Hinn gangandi leitaði aðhlynningar á slysadeild.
Ástæða slyssins er rakin til óaðgæslu ökumanns við vegamót auk þess sem gangbrautarréttur var ekki virtur.
Laugardaginn 12. jan. um klukkan 11 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut vestan við Straumsvík með þeim afleiðingum að hún valt og endaði utan vegar. Þrír voru í bifreiðinni og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku. Laugardaginn 12. jan. um klukkan 17 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Hvalfjarðarvegi með þeim afleiðingum að hún valt og endaði utan vegar. Ökumaður var einn í bifreiðinni og fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku. Sunnudaginn 13. jan. um klukkan 15 lentu tvær bifreiðar saman á ljósastýrðum gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar.
Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og farþegi í hinni. Orsök slyssins er rakin til aksturs á móti rauðu ljósi.
Sunnudaginn 13. jan. um klukkan 17 missti ökumaður stjórn á bifreið sinni á Kringlumýrarbraut í Fossvogi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Orsök slyssins er rakin til þess að ökumaður hafi ekið of hratt í hálku. Er það þess virði að reyna?////////////////Þetta er gott að rifja upp fyrir akandi og gangandi fólk,því það geymist oft að slys verða einnig á því,Lögregla á að byrta þetta og jafnvel segja orsakir ef þær eru vissar!!!þetta er þörf samskipti við okkur og þá og gæti bætt báða!!!Það er svo að það eru mjög svo tíðpar veðaurbreytingar á okkar landi og fólk sem ekki er að spökulera í því t.d snjó hálku vind og rigningu og jafvel rok einnig,svo maður tali nú ekki um ófærð!!! en þetta er það sem við viljum að lögregla sé okkur innan handar og verði jafnvel meira í Fésabókinni það er hún mikið lesin,og gott að hafa hana þar og hlýlegt að þessa manneskjulegi þáttur er komin á, en ekki helv.!!Löggan!!!!!/Halli gamli
Sjö umferðarslys í höfuðborginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.