Selur meirihlutann í Iceland/Það kemur ekki til af góðu,en vonandi nær Jóhannes sér aftur á strik: með heilsuna blessaður!!!

Selur mIceland verslunin Engihjalla eirihlutann í Iceland Viðskipti | mbl.is | 17.1.2013 | 15:32 Félag í eigu Árna Péturs Jónssonar hefur keypt 51% hlut í fyrirtækinu Ísland-Verslun sem á og rekur verslanirnar Iceland hér á landi.

Samhliða sölunni lætur Jóhannes Jónsson af störfum sem framkvæmdastjóri félagins og tekur við sem stjórnarformaður en ástæðan fyrir sölunni eru veikindi Jóhannesar.

Félag í eigu Árna Péturs Jónssonar hefur keypt 51% hlut í fyrirtækinu Ísland-Verslun hf. sem á og rekur matvöruverslanirnar Iceland hér á landi.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Hluturinn er keyptur af Jóhannesi Jónssyni sem eftir söluna á 12% hlut í Ísland-Verslun.

Annar hluthafi í Ísland-Verslun hf. er félag í eigu Iceland Foods í Bretlandi, sem á 37% hlut.

Samhliða sölunni lætur Jóhannes Jónsson af störfum sem framkvæmdastjóri félagins og tekur við sem stjórnarformaður, samkvæmt fréttatilkynningu.

Seldur vegna veikinda Haft er eftir Jóhannesi í fréttatilkynningu: „Þetta var nú ekki planið hjá mér. En í ljósi þess að veikindi mín hafa tekið sig upp aftur þá mun ég þurfa að verja tíma mínum og kröftum í að takast á við þau.

Ég mun því ekki geta sinnt þeirri uppbyggingu á Iceland búðunum eins og þarf að gera.

Ég verð því að eftirláta öðrum það verkefni. Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, opnaði Iceland verslun í lok júlí í Engihjalla í Kópavogi.

Morgunblaðið/RAX Ég treysti Árna Pétri fullkomlega fyrir því verkefni. Við höfum unnið saman áður og hann þekkir vel inn á matvörumarkaðinn.

Undirbúningur og opnun verslana Iceland hér á landi hefur verið ævintýri líkast og er ég þakklátur þeim miklu og góðu móttökum sem ég hef fengið hjá viðskiptavinum okkar og óska eftir áframhaldandi stuðningi frá þeim.

Það er von mín og trú að Iceland eigi eftir að vaxa og styrkjast á íslenska matvörumarkaðinum.“ Árni Pétur segir í fréttatilkynningu að kaupin séu spennandi tækifæri.

„Þrátt fyrir að ekki sé langt síðan að fyrsta Iceland verslunin hafi opnað hér á landi þá sé félagið og vörumerki þess þekkt.

Móttökur neytenda hafa verið góðar enda bjóði félagið upp á ýmsar vörunýjungar og lágt verð. Stefnt sé að áframhaldandi sókn inn á íslenska matvörumarkaðinn.

“ Árni Pétur Jónsson Árni Pétur keypti Tíu-ellefu verslunarkeðjuna af Arion banka sumarið 2011. Hann var áður forstjóri Teymis og Vodafone en lét af störfum hjá félögunum árið 2009. Hann stýrði áður matvælasviði Baugs./////////////Þetta voru slæmar fréttir af Jóhannesi og vonum við það besta um hans heilsu að hann berjist áfram með að halda henni með hjálp lækna og heilsuteymis!!!en þetta er þó gott að hafa þarna mann sem tekur við, sem öllu er vanur í svona matvöruviðskiptum,það er okkar sem verslum, mikils virði að halda verðinu niðri ekki veitir af á þessum síðustu verstu tímum!!Ekki þekki ég þennan Árna en hefi séð hann vonandi dugnaðarforkur eins og Jóhannes ,það eiginlega hlýtur að vera!!!En þetta eru fréttir sem slá alla sem þekkja Jóhannes af öllu góðu,þótt að menn séu en að skíta hann út meira og mynna/Halli gamli


mbl.is Selur meirihlutann í Iceland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband