Allir hugsa verðtryggt /Það eitt er hættulegt mjög!!!!!

„AllirGylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. hugsa verðtryggt“ Innlent | mbl.is | 24.1.2013 | 17:54 Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir það umhugsunarefni að hið opinbera sé einn helsti valdur verðbólgu með gjaldskrárhækkunum sínum.

Telur hann verðbólguna óumflýjanlega ef „allir hugsa verðtryggt.“ Fram kemur í skýrslu sem unnin er af ASÍ að ríki og sveitarfélög hafi á síðustu árum aukið álögur á heimilin með ítrekuðum hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum.

Þessar hækkanir hafi skilað sér beint út í verðlag og valdið aukinni verðbólgu

. Frá árinu 2008 hefur opinber þjónusta hækkað um ríflega 35% auk þess sem auknar álögur á eldsneyti, áfengi og tóbak hafa valdið um þriðjungs hækkun á þessum vörum á tímabilinu.

Áætla má að hækkanir á opinberum álögum hafi á síðustu árum hækkað verðlag hér á landi um 5-6%. „Það er ljóst að verðbólgan er langt umfram horfur allra.

Það vekur vissulega spurningar að ríkið verðtryggi gjaldskrá sína og sé þannig drifkraftur í myndun verðbólgu. Ef aðrir hugsa eins og ríkið, bæði launamenn og fyrirtæki þá verður þetta sagan endalausa,“ segir Gylfi.

Hann hvetur aðila á markaði og hjá hinu opinbera til að huga að nafnvöxtum í stað þess að láta verðtrygginguna stjórna hækkunum sínum.

„Ef allir hugsa verðtryggt hlýtur það að leiða til þess að verðbólgan verði há,“ segir Gylfi. Hann kennir rangri hagstjórn um að hluta til en jafnframt telur hann ranga hugsun í samfélaginu.

„Margt af þessum opinberu gjöldum sem eru að hækka eru eitthvað sem borgararnir geta ekkert verið án. Þú hættir ekkert að fara til læknis. Því hljóta að vera jafngild viðhorf hjá launamanninum að hugsa eins, að vilja launahækkanir þegar allt annað hækkar,“ segir Gylfi.///////////Þetta er erfitt mál og okkur ber að taka ákvörðun um að taka af vertryggingu í áföngum ekki spurning,þá mundi stjórnvöld taka sig á og drepa niður verðbólgu ekki annað i stöðunni,ég sé að þetta er eina leiðin að gera og það strax eftir kosningar///Halli gamli

 


mbl.is „Allir hugsa verðtryggt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband