30-40 metrar á sekúndu í hviðum Innlent | mbl.is | 26.1.2013 | 17:51 Skil mjög djúprar lægðar fara norður í kvöld og nótt með vaxandi vindi og austan- og norðaustan-stormi.
Reikna má með vindhviðum 30-40 m/s undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar til í nótt.
Skil mjög djúprar lægðar fara norður í kvöld og nótt með vaxandi vindi og austan- og norðaustan-stormi. Snjókoma og skafrenningur verður á fjallvegum um norðan- og norðaustanvert land, 18-23 m/s og sums staðar með mjög takmörkuðu skyggni.
Í byggð hlánar og með slyddu og rigningu og einnig hlánar upp fyrir frostmark á fjallvegum suðvestanlands.
Reikna má með vindhviðum 30-40 m/s undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar til í nótt, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Vetrarfærð á Vesturlandi Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða hálka og sumstaðar skafrenningur. Þæfingsfærð er á Mosfellsheiði og Kjósarskarði.
Vetrarfærð er einnig á Vesturlandi, víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fróðárheiði.
Versnandi veður er á Vestfjörðum og víða orðið mjög hvasst.
Óveður er á fjallvegum á sunnanverðum kjálkanum og ekki ferðaveður, alla vega ekki fyrir minni bíla. Þæfingsfærð er á Klettshálsi en einnig á leiðinni norður í Árneshrepp.
Óveður á Vatnsskarði Á Norðurlandi er hálka á flestum vegum og víða skafrenningur.
Óveður er á Vatnsskarði og eins er lítið skyggni á Öxnadalsheiðinni. Hólasandur er ófær.
Þungfært er á Mývatnsöræfum og ekkert ferðaveður. Hálka eða hálkublettir eru á Austurlandi og víða skafrenningur.
Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði. Hálka og éljagangur er á Oddskarði. Vegur með suðausturströndinni er að mestu auður.//////////////þetta er viðvörun og við tökum hana alvarlega mjög,ef eftir gengur,verður þetta eiginlega fárviðri,og við skulum allavega reikna með því!!!Veður er ekki orðið neitt grín á þessum bassis,og við sem erum komin á aldur erum heldur kannski hræddari við vond veður,það gerir að við höfum lent í þeim óteljandi og vitum að þetta gæti orðið betra og einnig verra!!!!!en allt að einu verum vel á verði öll!!!!/Halli gamli
30-40 metrar á sekúndu í hviðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.