Þetta er mál sem má ekki sofna/nei aldeilis ekki látum ekki kommana hrekja okkur frá þeim ágætu samskiptum!!!!

„ÞettaÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður. er mál sem má ekki sofna“ Innlent | mbl.is | 12.3.2013 | 15:52 „Það segir manni bara eitt að ráðherrann hafi haft þann eina ásetning að stoppa rannsókn íslensku lögreglunnar á þessu máli, allavega grípa inn í,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Alþingi í dag.

varðandi þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að stöðva samstarf íslenskra lögregluyfirvalda við bandarísku alríkislögregluna FBI sumarið 2011.

Vísaði hún til fundar fundar allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun. Spurt var á fundinum um það hvað hafi farið fram á fundi um málið 28. ágúst 2011. Þar hefði komið ótvírætt fram af hálfu lögreglunnar að þau mál sem til rannsóknar hafi verið hafi verið eitt og sama málið.

Innanríkisráðherra hefur hins vegar sagt að FBI hafi verið komin út fyrir réttabeiðni sem lá til grundvallar samstarfinu við íslensk lögregluyfirvöld.

Því hafi þurft aðra réttarbeiðni til en hún hafi ekki borist. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson Leitaði ekki til bandaríska dómsmálaráðuneytisins „Það var alveg ótvírætt af hálfu lögreglunnar að þarna er tvímælalaust um sama málið að ræða.

Það er að segja að ráðherra hafði enga heimild eða forsendur til þess að trufla rannsókn íslensku lögreglunnar á máli sem meðal annars leiddi til rannsóknar í Bandaríkjunum.

Ráðherra gat ekki gefið sér neinar nýjar forsendur,“ sagði Þorgerður. Hún benti á að ef innanríkisráðuneytið hafi talið að það þyrfti nýja réttarbeiðni hefði hún átt samkvæmt samkomulagi við Bandaríkin að leita til bandaríska dómsmálaráðuneytisins.

Það hafi ekki verið gert og það bendi til þess að markmið Ögmundar hafi aðeins verið að stöðva umrædda lögreglurannsókn.

„Þeir geta bara verið hér áfram á landinu“ Þorgerður minnti á að í umræðum um málið á fyrri stigum hafi komið fram í máli innanríkisráðherra og Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, að lögð hafi verið áhersla á að koma starfsmönnum FBI úr landi.

Hins vegar hafi Ögmundur sagt á fundinum í ágúst 2011, spurður að því af lögreglu hvað FBI-mennirnir ættu að gera: „Þá segir ráðherra: „Þeir geta bara verið hér áfram á landinu.““

„Ráðherra hafði engan áhuga á því að ýta mönnunum, fyrst alvarleikinn var svona mikill, úr landi. Ráðherra hafði bara áhuga á því að stoppa málið.

Það eru mörg mál sem halda hér áfram undir lok þingsins, önnur sofna.

Þetta er mál sem má ekki sofna því við erum orðin uppvís að því að hið pólitíska framkvæmdavald, pólitískur ráðherra, hefur með ásetningi gripið inn í sjálfstætt ákæruvald.

Málið er grafalvarlegt. Þetta er mál sem verður að halda áfram á vegum þingsins,“ sagði hún að lokum.//////////////////////////Þetta er og verður okkur til skammar,eins og þetta mál sem Ögmundur Kommi kom í gegn að reka þessa menn frá FBI frá landinu,svo er talað um um samvinnu Lögreglu og dómstóla við erlend ríki eins verið hefur og við höfum fulla þörf fyrir!!!en það er svo að þessir vinstri menn og Kommar eru á móti Bandaríkjamönnum alla tíð,það kom leynt og ljóst fram meðan þeir voru með herstöð hér að beiðni okkar og ekki annarra,nema við gengum í NATO 1949 sem var skráð í sögubækur vel vegna óeirða,sem urðu hér á Austurvelli og við Alþingi ,og var til þess að kommar urðu brjálaðir og reyndar fleiri vegna inngöngu í þetta varnarbandalag vestrænna ríkja þá gegn yfirráðastefnu Rússa og komma!!!en eggið fellur ekki langt frá Hænunni og hefur haldist vel áfram,það segist enn og helst þetta hatur á Banaríkjamönnum,og það er ljótt,jafnvel þó svo við séum ekki alltaf ánægð með framkomu hernaðar þeirra,en þeir eru að berjast við hættulega terrorista og allskonar yfirgangsskæruliða um heiminn sem vilja þá feiga!!!en við viljum hafa við þá sátt sem við getum leitað til ef með þarf,engin annar getur gert það  betur að sinni!!!/Halli gamli


mbl.is „Þetta er mál sem má ekki sofna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veit nú ekki frá hvaða öld þú ert sem þusar um rússa og komma, en samkvæmt heimildum hafa Bandaríkin startað sjálfir og stutt terrorista til að starta 95% stríðsátaka sem háð hafa verið frá síðari heimstyrjöldinni.

Þú og Þorgerður ættuð bara að drulla ykkur vestur til þessa fyrirheitna lands og láta okkur hin í friði með okkar litlu eyju!

Jón Páll Garðarsson (IP-tala skráð) 13.3.2013 kl. 00:20

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jón Páll Garðarsson Þú bullar bara þínar kenningar,á fullum rétti!!! enda veist þú ekkert um hvað málið sníst ,eða það skylst manni allvega/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 13.3.2013 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband