Birgitta verður efst í SV-kjördæmi//Píradar verða þarna með einn listan,:hvað er í gangi????

Birgitta Birgitta Jónsdóttir alþingismaður.verður efst í SV-kjördæmi Innlent | mbl.is | 12.3.2013 | 22:38 Úrslit prófkjörs Pírata í kjördæmum Reykjavík-norður, Reykjavík-suður og í suðvestur kjördæmi hafa verið gerð kunn. Birgitta Jónsdóttir alþingismaður Hreyfingarinnar verður efst á lista flokksins í SV-kjördæmi.

Fimm efstu fulltrúar Pírata eru eftirfarandi: Reykjavík norður. 1. Helgi Hrafn Gunnarsson 2. Halldóra Mogensen 3. Bjarni Rúnar Einarsson 4. Salvör Kristjana 5. Þórður Sveinsson Reykjavík suður. 1. Jón Þór Ólafsson 2. Ásta Helgadóttir 3. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir 4. Sigríður Fossberg Thorlacius 5. Arnaldur Sigurðarson Suðvestur kjördæmi. 1. Birgitta Jónsdóttir 2. Björn Leví Gunnarsson 3. Hákon Einar Júlíusson 4. Árni Þór Þorgeirsson 5. Berglind Ósk Bergsdóttir

Í fréttatilkynningu segir að athygli veki að 7 af 15 kjörnum fulltrúum í fimm efstu sætum þessara kjördæma eru konur. „Píratar hafa enga virka jafnréttisstefnu á sínum listum og því er það mikið fagnaðarefni að sjá þessar niðurstöður án þess að hafa gripið til kynjakvóta eða álíkra aðferða.

Kosningar fóru fram á kosningakerfi Pírata, þar sem meðlimir taka þátt í lýðræðislegri ákvarðanatöku, meðal annars um stefnumál og frambjóðendur flokksins.

“ „Á næstu dögum mun fara fram kosning í landsbyggðarkjördæmunum og hvetjum við fólk til þess að taka þátt og kynna sér kerfið,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, Pírati.

„Þetta er tækifæri til þess að hafa bein áhrif á framhaldið. Við teljum þetta vera framtíðina og hlökkum mikið til þess að þróa þetta kerfi áfram í samvinnu við almenning.

“ Hægt er að taka þátt í stefnumótun og kosningum á lýðræðisvef Pírata, x.piratar.is. Píratar eru stjórnmálaflokkur internetsins.

Sem slíkur leggur flokkurinn áherslu á opið aðgengi að upplýsingum og beinu lýðræði hvar sem því verður komið við með góðu móti.

Flokkurinn leggur enn fremur áherslu á sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga og rétt þeirra til friðhelgi. Afstaða Pírata til málefna og hugmynda er óháð frumflytjendum.//////////////Svona er þetta auðvelt að gera og segjast geta fengið atkvæði út á hvað segir maður maður bara ,ekki skil ég það þó svo maður lesi um póltík alla tíð/Þetta er bara til að sýnast/Halli gamli


mbl.is Birgitta verður efst í SV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að þetta sé ekki til að sýnast Haraldur minn, ég held að sú bylgja nýliða sem bjóða sig fram sé einmitt framtíðin og það sem koma skal.  Þeir sem vilja bara áfram þetta góða gamla verða að sætta sig við að það eru að koma aðrir tímar, þar sem unga fólki okkar ætlar að leiðrétta það sem aflaga hefur farið núna mörg undanfarin ár.  Og það er vel að mínu mati.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2013 kl. 23:19

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mikið er ég samt fegin að lifa það ekki vinkona mín, ef þetta er kemur sem það gerir verður það ekki strax ,ég bíð ekki í það kraðak sem þá skapast!!!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 13.3.2013 kl. 14:20

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þeir eru nú reyndar nær en við áttum okkur á minn kæri. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2013 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband