Þarf að greiða 100 milljónir í sekt/Gott að þessi mál fá svona afgerandi dóm!!!

Þarf að greMynd 574332iða 100 milljónir í sekt Viðskipti | mbl.is | 14.3.2013 | 16:52 Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í máli sem snérist um samkeppnisbrot lyfjabúðarinnar Lyf og heilsa.

Fyrirtækið þarf að greiða 100 milljónir fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína þegar fyrirtækið greip til aðgerða sem beindust gegn Apóteki Vesturlands.

Þarf að greiða 100 milljónir í sekt Samkeppniseftirlitið lagði 130 milljónir í stjórnsýslusekt á Lyf og heilsu árið 2010.

Sú niðurstaða var staðfest í úrskurðarnefnd samkeppnismála, en sektin var lækkuð niður í 100 milljónir.

Lyf og heilsa höfðaði þá dómsmál til að reyna að fá þessari ákvörðun breytt. Fyrirtækið hefur nú tapað málinu bæði í héraðsdómi og Hæstarétti.

Að mati héraðsdóms voru brotin „alvarleg, miðuðu að því að hindra innkomu nýrrar lyfjaverslunar á markað, sem stefndi sat áður einn að, og síðan að því að veikja hinn nýja aðila og raska samkeppni“ og staðfestir Hæstiréttur þá niðurstöðu.

Forsaga málsins er sú að Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á ætluðum brotum Lyfja og heilsu með húsleit í september 2007.

Rannsóknin hófst í kjölfar ábendinga um að fyrirtækið hefði gripið til aðgerða til að hindra að Apótek Vesturlands, sem þá var nýstofnað, næði að hasla sér völl á Akranesi.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skipulagðri atlögu gegn Apóteki Vesturlands, sem beinlínis hafði það að markmiði að raska samkeppni.

Aðgerðir Lyfja og heilsu munu annars vegar hafa falist í stofnun svonefnds vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir viðskiptavinir myndu ekki hefja viðskipti við Apótek Vesturlands.

Hins vegar fólust aðgerðirnar í því sem Lyf og heilsa nefndi „baráttuafslætti“. Um var að ræða verulega afslætti á mikilvægum lyfjum, sem einungis voru í boði á Akranesi.////////////þetta eru góð málalok og óska ég vini mínu Apótekaranum Ólafi til hamingju með þetta og að vinna þetta ,svona glæsilega, ég versla við þennan mann í Reykjavíkur Apóteki og þar flott að versla og auðvitað á Akranesi ef maður er þar,en og aftur flott hjá Ólafi Apótekara!!!!/Halli gamli


mbl.is Þarf að greiða 100 milljónir í sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1046427

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband