Ný 800 íbúða byggð í Skerjafirði/Borgin okkar er að flippa út peningar ein og skítur hjá þeim,væri ekki nær að að bjarga Rafmangsveitu R.vikur,heldur en að eyðileggaja Flugvöllin!!!

Ný Landið sem um ræðir er litað grænt á skýringarmyndinni....800 íbúða byggð í Skerjafirði Innlent | mbl.is | 14.3.2013 | 17:14 Samningar hafa tekist á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um kaup á landi ríkisins í Skerjafirði.

Í samningnum felst að Reykjavíkurborg kaupir land ríkisins, alls um 112.000 fermetra svæði. Gera má ráð fyrir að allt að 800 íbúðir geti risið á byggingarlandinu.

Ný 800 íbúða byggð í Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson, sem staðgengill borgarstjóra, undirrituðu samninginn á Reykjavíkurflugvelli.

Samningurinn var samþykktur í borgarráði með öllum greiddum atkvæðum á fundi þess í morgun, að því er segir í tilkynningu.

Samningur ríkisins og Reykjavíkurborgar er svokallaður markaðssamningur. Fyrsta greiðsla 440 milljónir „Þar sem svæðið er óskipulagt er ekki einfalt að finna rétt verð í viðskiptum með það. Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að selja allar lóðir á markaði.

Ríkinu er tryggt lágmarksverð í upphafi en skiptan hlut á móti Reykjavíkurborg eftir því sem hærra verð fæst fyrir landið. Áhættu borgarinnar er einnig haldið í lágmarki með því að ekkert verður greitt fyrir landið fyrr en lokun flugbrautarinnar er orðin að veruleika. Þetta þýðir að ríkið fær meira fyrir sinn hlut eftir því sem nýting landsins eykst.

Og sama á við um hlut Reykjavíkurborgar í sölu byggingarréttar. Dagur B. Eggertsson undirritaði samninginn sem staðgengill borgarstjóra ásamt Katrínu Júlíusdóttur, fjármálaráðherra. Fyrsta greiðsla Reykjavíkurborgar til ríkisins vegna samkomulagsins verða 440 milljónir króna en aðrar greiðslur munu taka mið af því sem fæst fyrir sölu byggingarréttar á svæðinu.

Verðmæti byggingarréttar getur orðið á bilinu einn til þrír milljarðar. Nákvæmar tölur munu taka mið af endanlegu skipulagi og verði fyrir sölu byggingarréttar. Ætla má að hlutur ríkisins verði á annan milljarð króna og hlutur Reykjavíkurborgar litlu minni en gert er ráð fyrir tiltölulega þéttri byggð á svæðinu og að hátt verð fáist fyrir landið,“ segir í tilkynningunni.

Byggt upp á svæðum sem losna við lokun litlu flugbrautarinnar Þá kemur fram, að í samningnum segi að sameiginlegt markmið ríkis og Reykjavíkurborgar sé að koma svæðunum sem losna við lokun norður/suður og austur/vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar (stundum kölluð litla flugbrautin) í uppbyggingu með hag beggja samningsaðila að leiðarljósi.

Fjöldi íbúða og fyrirkomulag á svæðinu verði útfært í deiliskipulagi undir forystu umhverfis- og skipulagssviðs. Aðferðafræði við deiliskipulagið hafi ekki verið ákveðin en þó sé ljóst að horft verður til vinningstillögu um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar.

Þá segir að vinna við skipulagið hefjist fljótlega þótt ljóst sé að uppbygging fari ekki af stað fyrr en innanríkisráðuneytið hafi formlega tilkynnt um lokun flugbrautarinnar.

Unnið sé að samkomulagi við innanríkisráðuneytið og standi vonir til að frá því verði gengið innan tíðar. „Vert er að rifja upp að gert hefur verið ráð fyrir lokun litlu flugbrautarinnar með sameiginlegri viljayfirlýsingu ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar frá árinu 1999.

Þá var gert ráð fyrir að samgöngumiðstöð gæti staðið. Þess má jafnframt geta að í úttekt samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar frá 2007 þar sem bornir voru saman ýmsir kostir í flugvallarmálinu, var í öllum tilvikum gert ráð fyrir að þessi þriðja braut flugvallarins í Vatnsmýri yrði lögð af,“ segir í tilkynningu.///////////////Hver fær Borgin alla þessa peninga og þetta er bara furðulegt að flugvöllur sem á að vera þarna samkvæmt öllu sem við vitum fram yfir 2020 eða svo og kannski fer aldrei nema að við viljum það!! en ekki einhverjir sem þykjast geta ráðstafað öllu að eigin geðþótta þetta er land sem völlurin á að vera á og verður það þar til að við meirihluti landsmanna viljum að hann fari,engin annar flugvöllur kemur þarna til greina,á meðan eiga ekki þessir Borgastafsmenn að kaupa upp perlur og land hér og þar og Rafveitan á hausunum þar var farið illa með og Borgin ber að halda því við,og borga skuldirnar,ekki gera þeir sem ollu þessu það,Nei flugvöllurinn fer ekkert,á næstu árum og ,ef þið eyðið svona peningunum hver leyfir ykkur það!!!!/Halli gamli


mbl.is Ný 800 íbúða byggð í Skerjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046426

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband