Er pláss á göngustígunum?/meira pláss en á götunum fyrir bílanna

Er pláss á göngustígunum? Innlent | mbl | 8.4.2013 | 9:06 Útihlaup verða sífellt vinsælli líkamsrækt meðal landsmanna og sífellt fjölgar í hópi þeirra sem hjóla til og frá vinnu.

Þegar við bætist sístækkandi rafmagnsvespufloti ungmenna, fólk með barnavagna, hunda- og göngufólk, þá er umferðin á göngustígum víða orðin býsna mikil. Landssamtök hjólreiðamanna telja að sérstakar reinar fyrir hjólreiðafólk yrðu mjög til bóta.

Morten Lange situr í stjórn Landssamtaka hjólreiðamanna. Hann segist vissulega heyra að það vanti upp á að hjólreiðamenn taki tillit til gangandi fólks.

Til dæmis sé kvartað yfir því að hjólreiðamenn geri ekki vart við sig með bjöllu.

Aðgreina þyrfti umferðina á göngustígunum betur „Samkvæmt umferðarlögum er skylda að vera með bjöllur, en vandamálið er að þær eru sjaldan seldar með reiðhjólum. Þess fyrir utan eru þær misjafnar að gæðum og skemmast auðveldlega.

En auðvitað gæti hjólreiðafólk látið vita af sér með því að bjóða góðan dag hárri og glaðri raustu,“ segir Morten. Rafmagnsvespur njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi.

„Annars eru svo margir gangandi vegfarendur með tónlist eða eitthvað annað í eyrunum og sumir heyra ekki neitt. Við hjá Landssamtökum hjólreiðamanna höfum lengi talað fyrir því að þar sem umferðin á göngustígum er mikil mætti aðgreina umferð hjólandi og gangandi.

“ Betra að hjóla utan stofnbrauta Ítrekað hefur verið bent á þá slysahættu sem skapast þegar hjólað er á talsverðum hraða á stígum þar sem gangandi vegfarendur eru á ferli.

Morten segir að fólk sé að hjóla á allt að 40-50 km hraða, en ómögulegt sé að segja hvort það sé á göngustígum „Hjólandi þurfa að vera meðvitaðir um það að þeir gangandi hafa forgang.“ Útihlaup verða sífellt vinsælli líkamsrækt meðal landsmanna.

Eggert Jóhannesson Morten segir samtökin að öllu jöfnu ekki hvetja til þess að fólk hjóli á stofnbrautum þar sem mikil umferð er, heldur sé mælt með götum þar sem minni umferð er.

„Staðurinn sem er ætlaður hjólreiðamönnum eru göturnar, þeir fá að nota gangstéttir og mjóa gangstíga á undanþágu,“ segir Morten.

Umferðarmenningin er að breytast Hann segir að bílstjórar taki miklu meira tillit til hjólreiðafólks nú, en fyrir nokkrum misserum og segir það án efa vera vegna þess að hjólreiðafólki hafi fjölgað mikið á stuttum tíma.

„Upplifun margra er að samvinna við bílstjóra gangi betur, þeir taka meiri tillit og umbera þá hjólreiðamenn sem eru á götunum betur en áður.

Umferðarmenningin er að breytast.“ Morten segir þó að affærasælast væri ef gerðir yrðu hjólastígar líkt og tíðkast t.d. í Danmörku.

„Það myndi auka öryggistilfinningu hjólreiðafólks og það yrði meiri hluti af umferðinni. En þetta myndi ekki henta alls staðar og þyrfti að útfæra á réttan hátt.“

Margt óljóst varðandi rafmagnsvespur Rafmagnsvespur falla undir sömu skilgreiningu og reiðhjól og hafa náð talsverðri útbreiðslu á undanförnum árum, einkum meðal ungmenna og munu vera býsna vinsælar fermingargjafir

. Vespurnar komast upp í 25 km hraða og samkvæmt umferðarlögum má ekki aka þeim á akbraut, en heimilt er að vera á þeim á gangstétt, gangbraut og á hjólreiðastígum og víkja á fyrir gangandi vegfarendum.

Í sömu lögum er kveðið á um að bannað sé að reiða á vespunum, nauðsynlegt sé að nota hjálm og viðbótarhlífðarbúnaður sé æskilegur. Þrátt fyrir það er algengt að sjá að minnsta kosti tvö hjálmlaus ungmenni á hverju hjóli.

Í leiðbeiningum Umferðarstofu er mælst til þess að börn yngri en 13 ára séu ekki á slíkum hjólum, en engum er skylt að fara eftir þeim leiðbeiningum og dæmi eru um að börn allt niður í tíu ára eigi rafmagnsvespur.

Samkvæmt núgildandi umferðarlögum er engra ökuréttinda krafist fyrir rafmagnsvespur, en í frumvarpi um ný umferðarlög var lagt til að því verði breytt

. Frumvarpið var ekki afgreitt á nýafstöðnu þingi og óvíst um framhald þess.

Tillitssemi er lykilorðið „Auðvitað er gott að fólk sé að hreyfa sig meira og nota þessa stíga. Það hefur orðið mikil aukning í samgönguhjólreiðum, en ég held að það sé pláss fyrir alla þessa umferð ef allir temja sér tillitssemi,“ segir Þóra Magnea Magnúsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Umferðarstofu spurð að því hvort gangstígarnir séu að verða yfirfullir.

„En það þarf að árétta að gangandi vegfarendur eiga forgang og það er mjög góð regla að nota hægri regluna á blönduðum stígum; þ.e. að ganga eða hjóla hægra megin og taka fram úr vinstra megin.

Svo ætti hjólreiðafólk ekkert að vera feimið við að nota bjölluna til að láta vita af sér, það er ekkert frekt við það,“ segir Þóra.

Hún segir að Umferðarstofu berist nokkuð af kvörtunum varðandi umferð á göngustígum og þær séu af ýmsum toga. „Við fáum kvartanir vegna hjólreiðafólks sem fer of hratt.

Svo er nokkuð kvartað yfir rafmagnshjólunum sem fara nokkuð hratt og algjörlega hljóðlaust.

“ Enginn hámarkshraði á göngustígum Sum reiðhjól eru þannig út garði gerð að ná má allt að 50 km hraða á þeim.

Er hámarkshraði á göngustígum? „Nei, það er enginn hámarkshraði þar. Við fáum einmitt nokkuð af ábendingum og umkvörtunum vegna þessa.

“ „Okkur ber að líta til þess að það er undanþága að leyfa hjólandi að vera á gangstígum hér á landi.

Þetta er undantekning sem þekkist vart annars staðar, enda er litið svo á víða erlendis að öruggara sé að hjólandi séu á akbrautum eða þar til gerðum hjólreiðastígum.

Hér hefur skort á að samgöngumannvirki séu hönnuð með tilliti til hjólandi en á undanförnum árum hefur orðið breyting á til betri vegar. Við hjá Umferðarstofu vonum að þessi undanþága sem nú er í gildi sé tímabundin en þangað til verðum við að sýna hvert öðru tillitssemi,“ segir Þóra.

Í vor er að vænta fræðslumynda um hjólreiðar frá Umferðarstofu og verða þær sýndar í sjónvarpi og á vef Umferðarstofu.

/////////////////////////þetta var alltaf viðað mál þúi var skipt göngu og hjólreyðarstígum og hefur bara gengið nokkuð vel og slysalítið!!og mun gera það getur þurft að breyta,það kostnaður en verður að ske,ég er ekki að mæla á móti hjólum og hlaupum og skokki,als ekki,en bílarnir þurfa sitt pláss og komst áfram nauðsinlegt að hafa það einning í huga meirihluti er á bílum þó það hsfi breyst með betri vetrum,í mínu ungdæmi voru bókstaflega allir á hjólum og gangandi ,þó nokkrir strætó,en það gátu ekki allir nýtt sér það ,ég hjólað þá um allan miðbæjinn sendist á 2 stöðum R.vikur Apóteki og svo í nýja Nýja bíó sem þar níbyggt upp!!þetta gekk bara vel,þó umferð sé  mikið meiri núna eru komnar göngu og hjólreyða götur um allt og fer fjölgandi og það nauðsin!!!þessi mál að sinni verða ekkil leyst með að lofa ekki bílum að komast áfram,það er skilda borgarbúa að geta,strætó hentar als ekki öllum!!!en þetta á að geta gengið í samvinnu við fókið en ekki boð og bönn,ég vil sem lengtst geta farið að skoða höfnina þar sem ég vann í mörg ár eða slippnum og ef það sem ég heyrði að taka ætti Tryggvagötu sem er 5o km gata og gera að hálfgerði göngugötu eða 30 km götu hrindið þið okkur Eldri Borgurum sem þarna keyrum út á Grandann og Eyjuna og slippinn og ægisgarðinn,við getum ekki gengi mikið mörg og verðum að noa bíl!!en það var verið að tala af Gísla Marteini hjólareiðaman og 101 og flugvöllin burt mann!!! man að taka Tryggvagötu og geirsgötu og fleiri götur og gera það rán dýrar göngugötur með bílaumferð 30 km þetta yrði algjör flöskuháls og gengi aldrei upp ,ég get sagt ykkur vað mikklabrautin vestúr er full setin eins og er svo allir fara ekki þá leið,svo eru bara veður þarna í Norðan átt og vesta mjög vond og hætta á flóðum í stórstreymi,þessir menn sem þessu ráða er ekki menn til þessa als ekki,því miður,hefði ekki átt eins og um var talað að setja vegin frá 2km frá Tónlistahöllini í göng vestur að Granda og ofanjarðar þessu götu sem við ræðum um!!!þetta átti að gera Harpa hótelið áttu að borga það!!!þetta er eyðilegging á umferð algerlega,en það sem þessum mönnum dettur í hug að byggja slipphótelið og koma svo með þetta eftirá!!!nei þetta verður ekki  liðið/Halli gamli  

ó 

Eg sjálfur 1955
mbl.is Er pláss á göngustígunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Sæll Halli,

Gaman að heyra staðfest að mjög mikið var hjólað á síðustu öld í Reykjavík,  eða eins og þú segir "bókstaflega allir á hjólum".  Hvað ætli hafi breytt þessu ?  Ég tel að bætt efnahag bæjarbúa hafi haft sitt að segja en líka var ákveðin tíðarandi í gangi um að bíllinn væri nútíminn, væri lausninn,  væri frelsi, og reiðhjólið hallærislegt, og sömuleiðis ganga og strætó. Mér liggur við að segja að það hafi klárlega verið ofsagt, já öfugsnúið  :-) 

Hvað varðar þetta með að setja 30 km hámarkshraði, í stað 50, þá er það ráðstöfun sem ekki dragi úr gegnumstreymi umferðar að neinu marki, því við lægri hraða má leyfa töluvert styttri bil á milli ökutækja.  

Morten Lange, 8.4.2013 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband