10.4.2013 | 14:03
Íslendingum boðið náið samráð um fríverslun//Allt gert til að fá okkur með EBS við erum einfærir að gera tvílhiðasaminig!!!
Íslendingum boðið náið samráð um fríverslun Innlent | mbl.is | 9.4.2013 | 16:45 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Karel De Gucht, viðskiptastjóri Evrópusambandsins, bundust í dag fastmælum um að náið samráð yrði haft við Íslendinga í krafti stöðu þeirra sem umsóknarríkis, um hinn stóra viðskiptasamning Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem nú er í undirbúningi
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að De Gucht hafi sagt að það væri heppilegast að slíkt samráð færi fram á vettvangi reglulegs samráðs hátt settra embættismanna um viðskiptamál sem komið var á fót í tengslum við aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu.
Hann kvað þó skýrt að orði að samningurinn yrði einungis á milli þessara tveggja aðila, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.
Viðskiptasamningur tveggja stærstu hagkerfa heimsins, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, mun ná til þriðjungs af öllum viðskiptum heimsins.
Þær munu snúast um þrjár stoðir: Markaðsaðgang fyrir vöru og þjónustu, gagnkvæma viðurkenningu á stöðlum og samræmdar reglur um hnattræn viðfangsefni.
Össur segir mikið hagsmunamál fyrir Íslendinga að komast með þessum hætti að borðinu þar sem hægt væri að undirbúa þátttöku Íslands innan þessa stóra viðskiptasvæðis.
Íslensk fyrirtæki og neytendur þyrftu á því að halda að hagsmuna þeirra yrði gætt þegar svo umfangsmikill samningur væri í bígerð.
Ráðherra hefur þegar skrifað til John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna um mögulega aðkomu Íslands og tekið málið upp við kollega sinna innan EFTA, segir í tilkynningunni.
Þá segir, að Össur hafi í gær átt fund með Gunther Oettinger, orkumálastjóra Evrópusambandsins.
Þar hafi komið skýrt fram að Íslendingar muni halda algerlega óskertu eignarhaldi og yfirráðum yfir orkulindum sínum við inngöngu í Evrópusambandið.
Íslendingar munu ráða því hvaða orkulindir verði nýttar, hvernig þær yrðu nýttar og hvernig við flytjum og dreifum orkunni, er haft eftir Össurri.
Þannig getum við nú lagt til hvílu hina lífseigu bábilju um að við munum tapa yfirráðum yfir orkulindum okkar við inngöngu í ESB.
Þeir Össur og Oettinger ræddu hvernig ESB og Ísland gætu unnið saman að því að auka hlut jarðhitans í Evrópu og boðar Oettinger til sérstakra hingborðsumræðna í Brussel í haust með íslenskum og evrópskum sérfræðingum og fulltrúum fjármálastofnana sem fjármagna orkuframkvæmdir í Evrópu.
Í ferð sinni til Brussel hitti ráðherra einnig Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, og Tonio Borg sem fer með matvælaöryggi og heilbrigðismál í framkvæmdastjórninniÖssur Skarphéðinsson ásamt Karel De Gucht.
Íslendingum boðið náið samráð um fríverslun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.