21.4.2013 | 15:22
Neita tengslum við bræðurna//þetta vandamál þjáir orðið allan heimin,við eigum að taka alvarlega einnig!!
Neita tengslum við bræðurna Erlent | AFP | 21.4.2013 | 12:23 Vígamenn í Norður-Kákasus neita því staðfastlega að bræðurnir, sem eru taldir hafa komið sprengjunum fyrir við marklínu Boston maraþonsins og kostuðu þrjá lífið og særði 170, tengist þeim á nokkurn hátt.
Á vef sem rússneskir uppreisnarmenn í Norður-Kákasus nota mikið til að koma skoðunum sínum á framfæri kemur fram að Vilayat Dagestan neiti því að uppreisnarmenn í Kákasus hafi komið að hernaðaraðgerðum gegn Bandaríkjunum.
Við eigum einungis í baráttu við Rússland, skrifa þeir á vefsíðuna, Kavkacenter.com. Dzhokhar Tsarnaev, 19 ára, var handtekinn seint á föstudagskvöldið þar sem hann fannst alvarlega særður í bát sem geymdur var í bakgarði í úthverfi Boston.
Hann liggur nú alvarlega særður á sjúkrahúsi. Líðan hans er stöðug en hann getur ekki tjáð sig. Bróðir hans, Tamerlan, lést eftir skotbardaga við lögreglu aðfararnótt föstudags. Bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú mögulega ástæðu þeirra fyrir árásunum.
Þeir eru frá Tétsníu en hafa búið í Bandaríkjunum í um tíu ár. Eldri bróðirinn, Tamerlan Tsarnaev, er sagður hafa stundað háskólanám í verkfræði en gert hlé á náminu í eina önn til að stunda hnefaleika. Hermt er að hann hafi stefnt að því að komast í ólympíulið Bandaríkjanna í hnefaleikum.
Yngri bróðirinn, Dzhokhar Tsarnaev, hóf nám í læknisfræði fyrir rúmu ári, að sögn föður hans.
Eldri bróðirinn var með sprengiefni innan á sér þegar lík hans fannst eftir skotbardagann, að sögn CNN. Á vef New York Times kemur fram að ættingjar og vinir þeirra viti ekki til þess að þeir hafi verið í beinum tengslum við hryðjuverkasamtök í Tétsníu.
Dzhokhar fékk bandarískan ríkisborgararétt í fyrra en Tamerlan var enn að biðlista eftir slíkum. Faðir þeirra segir að Tamerlan hafi farið ti lTétsníu og Dagestan í fyrra til þess að endurnýja rússneska vegabréfið sitt.
FBI greindi frá því á föstudagskvöldið að árið 2011 hafi erlend ríkisstjórn, sem ekki var tilgreind en nú er sagt að hafi verið sú rússneska, hafi óskað eftir upplýsingum um Tamerlan.
Byggðu Rússar beiðnina á upplýsingum um að hann hefði breyst verulega frá árinu 2010 og fylgdi nú öfgafullum múslímum að málum.
NYT hefur það eftir FBI fulltrúa að Rússar hafi óttast hvað Tamerlan hefði í huga og greinilegt hafi verið að þeir hafi haft eitthvað á unga manninn.
Töldu rússnesk stjórnvöld að hann gæti ætlað sér að komast í samband við hryðjuverkahópa í Kákasus í ferð sinni þangað.
Í gær var upplýst um að FBI hafi ekki fylgst með Tamerlan þegar hann kom aftur til Bandaríkjanna.
Kom fram að fyrri rannsókn hafi ekki leitt neitt í ljós.
Er nú hins vegar rannsakað hvort hann hafi verið í sambandi við öfgamenn í ferðinni og jafnvel hlotið þjálfun þar.///////////////////////Í fúlustu alvöru snertir þetta okkur öll,og við erum kannski of kærulaus með samstarf við þessu ríki sem eru að reyna koma þessum tehorystum frá ætlunum sínum,það er mikið af öfgamúslimum og allskonar hryðjuverkamönnum til um öll lönd,ég hefi sagt að við áttum aldrei að ganga í Shengen als ekki en hafa samvinnu við allar leyniþjónuðu vestrænna ríkja,þetta vandamál er um allan heim,og ber að taka sameiginlega á og við að skoða þetta einnig,kommar eru einnig hræddir Púttin veit eins og Bandaríkjamenn að þeir hafa barist í Afganistan og viðar báðir,og heiftin er þarna og hefndin til ennþá!!!svo og Egiptalandi og Líbýu og víðar ÍRAK og svo eru Norður Kórea að sýna klærnar!!!en við skulum ekki láta sem ekkert sé við erum einnig í þessu sem í sameiginlegum bandalögum!!!//////Halli gamli
Neita tengslum við bræðurna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.