Maður veður að taka þarna betur til skoðunar hvað þessi Borgarstjón okkar hafi leifi til að gera í Skipulagsmálum og álögur á Boragara!!!

Eg sjálfur 1955

Fréttatilkynning frá borgatstjórnarflokki sjálfstæðismanna

Aðhald í rekstri borgarinnar ábótavant- Auknar álögur kosta fjölskyldu tæpar 800 þúsund á kjörtímabilinu

Seinni umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar 2012 fór fram á borgarstjórnarfundi í dag.

Þetta er annað fjárhagsárið sem meirihluti Besta flokks og Samfylkingarinnar hefur haft tækifæri til þess að setja alfarið mark sitt á borgarreksturinn.

Og annað árið í röð er taprekstur í borginni sem gefur til kynna að aðhald í rekstri borgarinnar sé ábótavant.

Samanlögð rekstrarniðurstaða áranna 2011 og 2012 í A- hluta ársreikningsins er neikvæð um 2,8 milljarða króna. En samanlögð rekstrarniðurstaða tveggja ára þar á undan þegar fyrrverandi meirihluti var við stjórn var jákvæð um 4,7 milljarða króna.

Á tímabili núverandi meirihluta hefur aðhaldið verið ófullnægjandi og kerfið vaxið á kostnað borgarbúa með skatta- og gjaldskrárhækkunum.

Lítið sem ekkert hefur verið hagrætt í kerfinu. Þær aðgerðir sem mest áhersla var lögð á, hafa ekki ekki skilað þeirri niðurstöðu sem að var stefnt.

Þannig fór meirihlutinn í sársaukafullar breytingar á skóla- og frístundakerfi borgarinnar sem var harðlega gagnrýnt af foreldrum og starfsmönnum.

Auk þess hefur verið farið í breytingar á stjórnkerfinu þar sem markmiðið var mjög óskýrt.

Komið hefur í ljós að þessar hagræðingar skila afar litlum ávinningi og var það staðfest í skýrslu úttektarnefndar á stjórnsýslu borgarinnar sem birt var í apríl.

Auknar álögur kosta fjölskyldu tæpar 800 þúsund á kjörtímabilinu Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa tekið saman dæmi um 5 manna fjölskyldu með meðallaun sem á litla íbúð og þarf að greiða skatta og gjöld í Reykjavík.

Þessi fjölskylda mun í lok ársins hafa greitt 800 þúsund krónur umfram það sem hún hefði gert án hækkana núverandi meirihluta frá árinu 2010.

Þess má geta að á árunum 2010 – 2013 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 13% en hækkanir á þjónustu borgarinnar nema um 20% á sama tíma.

Skattar og gjöld borgarinnar hafa því á þessu sama tímabili hækkað um 7% umfram vísitölu. Það er auðvelt að stjórna með því að taka stöðugt fé af fjölskyldum og fyrirtækjum í borginni.

Mun skynsamlegra, sanngjarnara og farsælla hefði verið að nýta það svigrúm sem til að hagræða í kerfinu og auðvelda almenningi að takast á við erfiða tíma./////////////////////Ég tók þessa skírslu tilskoðunar eftir hana vinkonu mína og félega Mörtu borgarfulltrúa og er maður bara dolfallin!!eru þessum mönnum þarna í meirihluta allt leyfilegt,eru engin takmörk fyrir skipulagsvitaleysu og álögum á Borgarna ég munn á næstunni útfæra þetta betur en maður er að verða kjaftstopp af undrun ef þetta verður ekki stoppað/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband