Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum//sammála þessu en vil samt hafa frávik hærri aðeins!!!

Virkt hraMynd 590620ðaeftirlit fækkar slysum Innlent | mbl.is | 19.6.2013 | 12:45 165 ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli það sem af er júnímánuði, að sögn Guðmundar Inga Ingasonar varðstjóra.

Erlendur ferðamaður á Mýrdalssandi mældist í gær á hraðanum 159 km/klst. og var hann sviptur ökuréttindum í tvo mánuði og gert að greiða 140 þúsund í sekt.

Lögreglan hefur síðan 1. júní staðið fyrir radarmælingum víða í umdæminu í samvinnu við ríkislögreglustjóra.

„Við merkjum að það hafa verið fá óhöpp núna í júní hjá okkur, sem betur fer. Við viljum meina að við séum að ná niður slysum með virku daglegu eftirliti.

Þetta átak virðist því vera að skila sér,“ segir Guðmundur. Hann segir vegina geta verið hættulega og þeir séu gjarnan vanmetnir af útlendingum.

„Þeim finnst þetta svo beint en þetta eru mjóir vegir og eru ekki í góðu standi núna. Þeir eru ósléttir og bjóða ekki upp á svona hraðakstur.

“ Næstmesti hraðinn sem hefur mælst í átakinu er 150 km/klst. og var sá ökumaður sviptur leyfi í mánuð.

Reglulega kemur fyrir að bílar með hjólhýsi eða kerrur eru stöðvaðir fyrir hraðakstur en svo virðist sem ekki allir geri sér grein fyrir því að þá sé hámarkshraðinn 80 km/klst.

Guðmundur segir lögregluna einnig fylgjast með að fólk noti bílbelti.

„Við erum búnir að sjá fyrir löngu að það er ávísun á stórslys sé fólk ekki í belti þegar eitthvað gerist.

Svo er til fyrirmyndar frágangur með börn, fólk hugsar mikið um að hafa þau í stólum og það er að skila sér ef eitthvað gerist. Það má segja að það fari allt laust úr bílum við veltur.“////////////Þetta er frábært að gera,og við eru mjög ánægð með þetta flest,samt er þó hægt að breyta þessu aðeins án mikilla erfiðleika,við erum flest orðin á bílum með Krús Control og til sanngirni er það von okkar að frávikin séu hækkuð aðeins eða í 10 km en ekki fimm krúsin í bílunum er ekki svo nákvæmt,ég og margur fleiri viljum að þetta verði kannað,og gert,það er engin goðgá að gera,en að öðru leiti er þetta í lagi nema á 4 földum malbikuðum vegi T.D. Keflavíkurvegi hiklaust þar 120 km hraði leifður,ekkert að því,á nú yfir 20 ára tímabili hafa bílar tekkið svo miklum framförum í öryggi að það jaðrar við byltingu,og við verðum að taka það með í reykingin!!en eftirlitið er gott,þökk sé Lögreglu og okkur sjálfum!!!/Halli gamli


mbl.is Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband