Þessi skipti Skipta hf.eru fjármögnuð að Arion banka og lífeyrissjóðum okkar

Eg sjálfur 1955
Öll skilyrði vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Skipta hafa verið uppfyllt Skipti hf. hefur þann 13. júní 2013 uppfyllt öll skilyrði vegna samnings um fjárhagslega endurskipulagningu skulda félagsins, dags. 5. apríl 2013, með undirritun lánasamnings við Arion banka hf. að fjárhæð kr. 19 milljarðar og með móttöku áskriftarloforða frá fagfjárfestum að nýjum skuldabréfaflokki félagsins að fjárhæð kr. 8 milljarðar. Hefur framangreint í för með sér að þann 20. júní 2013 (i) verður öllum skuldabréfum í skuldabréfaflokknum SIMI 06 01 skipt fyrir hlutafé í félaginu, (ii) verður öllum kröfum Arion banka hf., sem ekki eru hluti af núverandi forgangsláni félagsins, skipt fyrir hlutafé í félaginu og (iii) fær hver kröfuhafi félagsins sem er aðili að framangreindum samningi greiddar kr. 2.000.000. Þá er gert ráð fyrir að núverandi forgangslán félagsins verði greitt upp að fullu þann 5. júlí 2013 og með þeirri greiðslu lýkur fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta hf. Hluthafar Skipta hf. verða 128 talsins. 10 stærstu hluthafar verða: Hluthafi Hlutur Arion banki hf. 38,3% Lífeyrissjóður Verslunarmanna 13,2% Lífeyrissjóður Starfsmanna Ríkisins 12,0% Gildi lífeyrissjóður 4,9% Íslandssjóðir 4,8% Almenni lífeyrissjóðurinn 2,7% Lífeyrissjóður verkfræðinga 2,6% Sameinaði Lífeyrissjóðurinn 2,2% Festa lífeyrissjóður 2,2% Stafir lífeyrissjóður 1,5% Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf.: Það er mikið ánægjuefni að hafa tryggt fjármögnun félagsins með farsælum hætti og þannig fullnægja síðasta skilyrðinu sem stóð í vegi fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta hf. Lykillinn að endurskipulagningunni er sá árangur sem hefur náðst í rekstri félagsin á undanförnum misserum og ég vil þakka starfsfólki Skipta hf. og dótturfélaga fyrir frábært starf. Framundan eru spennandi tímar á fjarskiptamarkaði og við horfum nú björtum augum til framtíðar með öfluga nýja hluthafa um borð. Með endurfjármögnuninni og endurskipulagningunni eru Skipti hf. og dótturfélög í góðri stöðu til að vinna af krafti að því að þróa áfram bestu fjarskiptalausnirnar fyrir íslensk fyrirtæki og neytendur, sem gera miklar kröfur um úrvalsþjónustu og hagkvæmar lausnir.Frekari upplýsingar veita Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf. s. 550-6003 Pétur Þ. Óskarsson, s. 863-6075//////////////Eg var að lesa að þessum skiptum sé nú lokið og þessi fyrirtæki sé á grænni grein Símin og Skjár einn!!! en það er samt sagt að skár einn sé að tapa milljón á dag,maður kemur ekki augu á að í lífeyrissjóðum okkar skuli vera gert að vera í svona fjárhættuspili,svo væri nær að lána þetta til að bjarga manslífum og heilsugæslu,eða byggja nokkur langleguhús  og staði fyrir eldri Borgara/Halli gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi grein gæti verið góð lestning fyrir lífeyrissjóðina.

http://www.patent.blog.is

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 4.7.2013 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband