Lán geta lækkað um 5,5 milljónir Innlent | mbl.is | 1.12.2013 | 13:20 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð... Verðtryggð húsnæðislán verða færð niður að hámarki um fjórar milljónir króna með beinum aðgerðum en þeir sem nýta sér þann möguleika að greiða niður höfuðstól með séreignarsparnaði þar sem hámarið er 500 þúsund á ári í þrjú ár.
Þar geta því að hámarki bæst við 1,5 milljónir króna í lækkun eða alls 5,5 milljónir króna.Þetta er meðal þess sem fram kom við kynningu á aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að lækka húsnæðisskuldir heimila í landinu.
Annars vegar er um að ræða lækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar skattaívilnun vegna séreignarlífeyrissparnaðar sem fellur til eftir að aðgerðin er komin til framkvæmda. Unnt verður að ráðstafa séreignarlífeyrissparnaði til lækkunar höfuðstóls og býðst sú leið öllum þeim sem skulda húsnæðislán óháð lánsformi
Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána 30.11.2013 Höfuðstólslækkun húsnæðislána Höfuðstólslækkun húsnæðislána Ríkisstjórnin kynnir í dag aðgerðaáætlun með það að markmiði að lækka húsnæðisskuldir heimila í landinu.
Annars vegar er um að ræða lækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar skattaívilnun vegna séreignarlífeyrissparnaðar sem fellur til eftir að aðgerðin er komin til framkvæmda. Unnt verður að ráðstafa séreignarlífeyrissparnaði til lækkunar höfuðstóls og býðst sú leið öllum þeim sem skulda húsnæðislán óháð lánsformi.
Aðgerðirnar eru eftirfarandi: Leiðrétting verðtryggðra húsnæðislána Verðtryggð húsnæðislán verða færð niður um fjárhæð sem samsvarar verðbótum umfram 4,8% sem féllu til á tímabilinu desember 2007 til ágúst 2010. Þetta samsvarar um 13% leiðréttingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Hámarksfjárhæð niðurfærslu á heimili verður 4 m.kr.
Um 90% heimila sem rétt eiga til leiðréttingar verða ekki fyrir skerðingu vegna hámarksins, þ.e. lán sem stóðu í allt að 30 m.kr. í lok árs 2010.
Til frádráttar koma fyrri úrræði til lækkunar höfuðstóls sem lántakandi hefur notið. Þau lán sem skapa rétt til leiðréttingar eru verðtryggð húsnæðislán vegna kaupa á fasteign til eigin nota.
Leiðrétting er að frumkvæði lántaka og þarf að sækja um hana hjá lánveitanda sem er með húsnæðislán á fremsta veðrétti á umsóknardegi. Lagt er til að sá lánveitandi verði umsjónaraðili leiðréttingar og annist framkvæmd hennar í samræmi
við þá aðferðafræði sem lýst er í skýrslu sérfræðingahóps um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána.
Skattleysi séreignarlífeyrissparnaðar Þau heimili sem skulda húsnæðislán geta nýtt greiðslur sem ella rynnu inn í séreignarsjóði til þess að greiða inn á húsnæðislán sín.
Ríkissjóður gefur eftir tekjuskatt af allt að 4% iðgjaldi launþega og allt að 2% mótframlagi vinnuveitenda í séreignarlífeyrissparnað gegn því að þeim fjármunum sé varið til inngreiðslna á höfuðstól húsnæðislána. Skattleysi takmarkast við 500 þúsund kr. á ári.
Úrræðið gildir í þrjú ár. Aðgerðin takmarkast við þá sem skulduðu húsnæðislán fyrir 1. desember 2013. Sá hópur sem hefur þegar fengið niðurfellingar skulda getur nýtt sér skattleysi séreignarlífeyrissparnaðar og þannig gagnast aðgerðin sem flestum.
Umfang aðgerðarinnar Heildarumfang aðgerðarinnar er metið á um 150 ma.kr. sem dreifist yfir fjögurra ára tímabil. Þar af er umfang leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána um 80 ma.kr. og höfuðstólslækkun með nýtingu séreignarlífeyrissparnaðar um 70 ma.kr.
Þess ber að geta að þetta mat er háð nokkurri óvissu. Aðgerðin krefst þess að ríkissjóður hafi milligöngu um fjármögnun og framkvæmd hennar.
Ekki er þörf á stofnun leiðréttingarsjóðs þar sem aðgerðin verður að fullu fjármögnuð.
Gert er ráð fyrir því að hrein áhrif á ríkissjóð verði óveruleg fyrir hvert ár á tímabilinu 2014-2017.
Efnahagsleg áhrif Aðgerðirnar aflétta efnahagslegri óvissu er varða skuldamál heimilanna. Skuldir heimilanna eru nú 108% af vergri landsframleiðslu, sem er hátt hlutfall í alþjóðlegum samanburði. Samhliða lækkun skulda mun aðgerðin auka ráðstöfunartekjur heimila og hvetja til sparnaðar með skattleysi séreignarlífeyrissparnaðar.
Þá myndast aukinn hvati til fjárfestingar þegar heimilin öðlast styrk á ný og hafa meira svigrúm til fjárfestinga.
Helstu niðurstöður í greiningu sem ráðgjafafyrirtækið Analytica ehf. vann fyrir hópinn eru þær að miðað við gefnar forsendur þá eru þau þjóðhagslegu áhrif þeirra aðgerða sem sérfræðingahópurinn leggur til tiltölulega mild, þótt talsverðra örvandi áhrifa geti gætt á fjárfestingu í íbúðarhúsnæði.
Sjá má áhrif aðgerðanna á einstaka efnahagsstærðir miðað við fráviksspá Analytica við þjóðhagsspá Hagstofu Íslands frá nóvember 2013.
Tímarammi aðgerðarinnar Gera má ráð fyrir því að verði tillagan samþykkt, sem og nauðsynlegar lagabreytingar, verði að öllu forfallalausu hægt að framkvæma niðurfærslur um mitt ár 2014. Nokkurn undirbúningstíma þarf til að endurreikna lán.
Aðgerðir sem varða skattleysi séreignarlífeyrissparnaðar sem miða að því að lækka höfuðstól húsnæðislána gætu hafist um svipað leyti. /////////////þegar þetta er lesið allt ,er maður í fyrstu svolítið ruglaður og er það von,þetta kemur öllum eitthvað og kannski er ekki hægt meira,en Yngra fólk er flest með Aukalifeyrir og það einnig margir aðrir en fullt af fólki sem hefur hann ekki,þarna kemur dálítið ósamræmi að þetta fólk geti notað hann skattlaust til lækkunar á höfuðstól!! en við ekki sem ekki fengum hann en getum skuldað einnig!!! En þetta er samt lækkun á honum fyrir alla sem hafa verðtryggð húsnæðislán,einnig lán til endurbyggingar hugnæðis!!0g svo þeir sem leigja fá einnig bót sem er gott,en eins og sagt er er þetta enn í skoðun betur hjá okkur sem biðum þessa og segjum bara þetta er viðsnúningur góður og vinstri menn eiga að skammast sýn/Halli gamli
Lán geta lækkað um 5,5 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.