20.12.2013 | 15:33
30 milljarða halli á ríkissjóði:Stjórnarandstaðan setur allt í uppnám á síðustu metrunum!!
30 milljarða halli á ríkissjóði Innlent | mbl.is | 20.12.2013 | 14:59 Reiknað er með talsvert meiri halla en fjárlög gerðu ráð fyrir. Innheimtar tekjur ríkissjóðs voru 29,6 milljörðum króna lægri en greidd gjöld á fyrstu níu mánuðum þessa árs.
Ríkisendurskoðun bendir á að ráðuneytin þurfi að bregðast við með fullnægjandi hætti þegar sýnt þykir að forstöðumenn nái ekki að halda rekstri stofnana innan fjárheimilda.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrstu níu mánuði ársins 2013 kemur fram að innheimtar tekjur ríkissjóðs námu samtals 382,8 milljörðum króna á tímabilinu en greidd gjöld samtals 412,5 milljörðum króna.
Greiðsluhallinn nam því 29,6 milljörðum króna. Hugtakið greiðsluhalli horfir til innheimtra tekna og greiddra gjalda á tilteknu tímabili. Hugtökin rekstarhalli/afgangur vísa hins vegar til allra áfallinna tekna og gjalda, hvort sem þau hafa komið til innheimtu/greiðslu eður ei.
Ekki eru unnin eiginlegrekstraruppgjör fyrir ríkissjóð innan ársins en slík uppgjör gefa fyllri mynd af fjárhagsstöðu hans en greiðsluuppgjör. Í greiðsluuppgjörum ríkissjóðs er t.a.m. ekki horft til áfallinna lífeyrisskuldbindinga, fjármagnskostnaðar, afskrifta skattkrafna o.s.frv.
Fjárlög gerðu ráð fyrir 21 milljarða halla Í skýrslunni kemur fram að greiðsluhallinn stefni í að verða meira en 30 milljarðar króna á árinu öllu. Í fjárlögum var hins vegar gert ráð fyrir 21 milljóna króna greiðsluhalla. Þá segir að útlit sé fyrir að tekjur ríkissjóðs á árinu verði um 14 milljörðum króna lægri en gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Ástæðurnar séu m.a. þær að efnahagsforsendur fjárlaga hafi ekki þróast með þeim hætti sem reiknað var með auk þess sem ákvarðanir hafi verið teknar á árinu sem hafi falið í sér skertar tekjur miðað við fjárlög.
Á hinn bóginn sé útlit fyrir að gjöldin verði allt að 4,9 milljörðum króna lægri en samkvæmt fjárlögum. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru gjöld 40% fjárlagaliða umfram áætlun en gjöld 60% liða undir áætlun. Ríkisendurskoðun bendir á að ráðuneytin þurfi að bregðast við með fullnægjandi hætti þegar sýnt þykir að forstöðumenn stofnana nái ekki að halda rekstri þeirra innan fjárheimilda.
Nokkur dæmi séu um stofnanir sem ítrekað hafi farið fram úr fjárheimildum og safnað upp halla sem ekki verði séð hvernig rétta eigi af.
Þá bendir Ríkisendurskoðun á að bæta þurfi áætlanagerð fjárlaga vegna ýmissa liða, m.a. liða með lög- eða samningsbundnum útgjöldum sem ekki verður breytt með skömmum fyrirvara.
Loks telur Ríkisendurskoðun ekki eðlilegt að forstöðumenn stofni til útgjalda á grundvelli vilyrða ráðherra eða þingmanna um auknar fjárveitingar.
Forstöðumönnum beri skylda til að haga rekstri í samræmi við gildandi fjárheimildir megi ekki auka útgjöld fyrr en Alþingi hafi samþykkt auknar fjárveitingar./////////////Þetta er allt stjórnarandstöðinni að kenna ,að mínu mati og vel það,En það var sammælst um að spara og gera það það sem hægt er til að hlutir gangi!!svo komur minnihluti ábyrðarlaus og sprengir allt upp,verri en Kommúnistar á Rússlandi sem eru í því að sleppa föngum og gera jólalegt,horfa á þessa íslenski Komma eins og Steingrím J. og Árna Pál og rellurnar 5 sem koma oftast í pontu og segja allt ómögulegt sem gert er koma í stólinn við allar aðstæður og segja allt miður sem fer!!!að búa við svona á Alþingi er ekki hægt,þetta eyðileggur allan móral þarna og var hann ekki mikill fyrir,ég mundi i sporum mynna mana ekki á þá hlusta als ekki/Halli gamli
30 milljarða halli á ríkissjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Átt þú við að lækkanir og niðurfellingar skatta og gjalda núverandi ríkisstjórnar hafi ekki haft nein áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs?
Ufsi (IP-tala skráð) 20.12.2013 kl. 15:55
Það sem þú bendir á Ufsi kemur að megninu til ekki til framkvæmda fyrr en á næsta fjárlagaári. Það sem þessar tölur sýna eru að mestu leyti það sem núverandi stjórn hefur þurft að glýma við frá þeirri síðustu.
Þórarinn (IP-tala skráð) 20.12.2013 kl. 17:37
Þakka innlitið drengir góðir:það er svo að þessi mál eru erfið mjög hvar á að forgansraða með sparnaði sem verður að vera og breyta um kúrs og borga skuldir,vexstir eru um 80 milljarðar á ári en það verður að borga/Kveðja
Haraldur Haraldsson, 20.12.2013 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.