Þetta vildi ég einnig sagt hafa vinir mínir!!!!!

Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka. En hvers er að minnast og hvað er það þá, sem helst skal í minningu geyma? Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá, það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá. En miskunnsemd Guðs má ei gleyma. Hún birtist á vori sem vermandi sól, sem vöxtur í sumarsins blíðum, í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól, sem skínandi himinn og gleðirík jól í vetrarins helkuldahríðum. Hún birtist og reynist sem blessunarlind á blíðunnar sólfagra degi, hún birtist sem lækning við böli og synd, hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd, er lýsir oss lífsins á vegi. Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár og góðar og frjósamar tíðir, og Guði sé lof, því að grædd urðu sár, og Guði sé lof, því að dögg urðu tár. Allt breyttist í blessun um síðir. Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár og góðar og blessaðar tíðir, gef himneska dögg gegnum harmanna tár, gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eilífan unað um síðir. /þetta toppar maður ekki vinir mínir!!!!!!Eg 1950 tilhugalífið

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband