Óveður, sandbylur og dimm hríð Innlent | mbl.is | 3.2.2014 | 15:01 Vont veður er víða á landinu. Varað er við óveðri í Hvalnesi, í Öræfum, á Reynisfjalli og undir Eyjafjöllum, en einnig við Hafnarfjall og á Snæfellsnesi, bæði við Hafursfell og á Fróðárheiði.
Þá er varað við sandbyl á Samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar er spáð mjög hvassri austanátt um tíma í Öræfasveit, hviðum allt að 40-50 m/s, til kl. 16 í dag.
Þá er vakin athygli á varasömum akstursskilyrðum á Hellisheiði og í Þrengslum, hríðarkófi og blindu síðdegis. Hviður 30-40 m/s undir Eyjafjöllum um tíma nærri kl. 15 og eins síðdegis undir Hafnarfjalli.
Norðaustan- og austanlands má reikna með dimmri hríð ásamt skafrenningi á fjallvegum upp úr miðjum degi og fram á kvöld.
Stormur og ofanhríð einnig vestantil á Norðurlandi, á Vestfjörðum og í Dölum um tíma undir kvöldið sumsstaðar, einnig í byggð.
En annars hlánar um land allt á endanum. Hvasst á Vestfjörðum Flestar aðalleiðir á Suðurlandi eru greiðfærar en hálkublettir eru þó á Mosfellsheiði og hálka er sumsstaðar í uppsveitum. Hálka er á Bláfjallavegi og í Kjósarskarði en flughált í Efri-Grafningi.
Óveður er á Reynisfjalli og undir Eyjafjöllum. Það er hálka eða hálkublettir á köflum á Vesturlandi, einkum á útvegum. Varað er við óveðri undir Hafnarfjalli, við Hafursfell og á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víða hvasst og skafrenningur eða ofankoma.
Stórhríð er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og þar er ekki útlit fyrir að opnist í dag. Þæfingur er á kafla í Djúpinu.
Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Stórhríð er á Þverárfjalli og vegur ófær. Stórhríð er einnig á Öxnadalsheiði en ekki fyrirstaða á vegi eins og er.
Ófært er bæði á Hólasandi og Dettifossvegi. Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Austurlandi og sumsstaðar skafrenningur eða él.
Vegur er auður frá Djúpavogi suður um en óveður í Hvalnesi og í Öræfum. Sandbylur er á Skeiðarársandi///////////////Það er ekkert grín að vera á ferð á miðjum Þorra,þetta ekki gæfulegt veðurlag!En við erum þessu vön,og eigum ekki að vera á ferð nema í nauðsyn, og hringja í færð og veður ,ég segi og skrifa þessum kulda og veðurhæðum er sko ekki að ljúka,þó menn tali um að hlýnun sé mikil,er þetta bara að fara í fimbulvetur!!!,en aðgát skal höfð,og ekki flandra að neinu//Halli gamli
.
Óveður, sandbylur og dimm hríð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 1046584
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.