Illugi ætlar að stytta Framhaldskólana:það er laustninn í launum kennara!!!

„Ég ætla mér að stytta framhaldsskólana og mun gera það. Ég mun fara þessa leið og ég vil gjarnan nota þetta til þess að búa til launahækkunarmöguleika fyrir kennara vegna þessara breytinga.
 
Ég held að núna sé tækifærið og ég auðvitað bara vona að menn grípi það,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningamálaráðherra. Illugi var gestur Bubba Morthens í þættinum Stál og hnífur í gærkvöld. Hann benti þar á að nám til stúdentsprófs á Íslandi væri lengra en í öðrum OECD löndum og að Íslendingar lykju því háskólanámi seint.
 
Hann segir að með því að stytta námið um eitt ár muni tími nemenda nýtast betur og segir þetta muna um fyrir hvern og einn einstakling og tími íslenskra nemenda sé alveg jafn verðmætur og tími nemenda í öðrum löndum.
 
Hann segir því engin rök vera til fyrir því að Íslendingar einir þjóða ættu að eyða fjórtán árum í undirbúning fyrir háskólanám. Þá segir hann að með þessu verði hagræðing hjá ríkinu.
 
„Ég vil nota þetta sem innlegg í kjaraumræðuna núna til þess að reyna að hækka umfram þessi 2,8% sem annars eru bara í boði af því að við vitum hvað búið er að gerast á almenna markaðnum.“
 
Þá segir hann ríkið ekki geta gengið neitt lengra í kauphækkun heldur en almenni markaðurinn nema það verði einhver kerfisbreyting. “ Illugi segir að skoðanakannanir hafi leitt í ljós að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé þeirrar skoðunar að stygga eigið námið.
 
„Þetta þýðir að starfsævi þeirra sem ganga menntaveginn lengist um að minnsta kosti eitt ár og þetta skiptir bara verulegu máli.“ „Þetta er eitthvað sem verður.“//////////////Lyst vel á þetta þó fyrr hefði verið,þetta mun leysa launamálin einnig og það gott ekki veitir af að borga kennurum sæmileg laun!!því miður er ekki hægt að laka sama leikin í heilsugæslunni og spítalamálum,en samt má minka það með forvörnum mikið og það ber að gera og vel það/Halli gamli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband