11.3.2014 | 13:34
Vond staða fyrir Eyjamenn:Ekkert mun bjarga þessu mema setja lög,stoppa verkfallið og semja svo!!!!
Von
Vond staða fyrir Eyjamenn Innlent | mbl | 11.3.2014 | 11:40 Herjólfur Engir fundir hafa verið boðaðir í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi og viðsemjenda þeirra. Þrátt fyrir yfirvinnubann voru vörur keyrðar frá borði í gær svo hægt væri að koma dagvöru í verslanir.
Á annað hundrað krakkar í ÍBV þurfa að fá frí í skóla tvo daga til þess að keppa í handbolta um helginaStjórnarformaður ÍBV, Sigursveinn Þórðarson, segir að þetta sé vond staða fyrir alla Vestmannaeyinga.
Yfirvinnubann undirmanna á Herjólfi hefur staðið yfir í tæpa viku og að sögn Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Íslands, var síðasti fundur í kjaradeilunni haldinn á föstudag hjá ríkissáttasemjara.
Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en hægt miðar í viðræðum. Í gær seinkaði Herjólfi um rúma tvo tíma vegna slæms veðurs. Skipið var því ekki komið til hafnar í Vestmannaeyjum fyrr en eftir klukkan 17 er yfirvinnubann undirmanna hófst.
Fengu mjólkina sína Að sögn Jónasar var ákveðið að koma vörum sem voru um borð upp í land enda um dagvöru að ræða fyrir verslanir í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyingar fengu mjólkina sína, segir Jónas í samtali við mbl.is. Þess í stað mættu starfsmenn klukkustund síðar en venjan er til vinnu í morgun.
Meðal þeirra sem komu til Eyja síðdegis í gær var um sjötíu manna hópur unglinga sem hafði mætt á SamFestinginn, hátíð Samfés, um helgina.
Til stóð að hópurinn kæmi heim á sunnudag en vegna yfirvinnubanns sigldi Herjólfur ekki um helgina. Þurfa að fá frí í skóla í tvo daga Aðalstjórn ÍBV íþróttafélags hefur sent frá sér ályktun þar sem hörmuð er sú staða sem komin er upp varðandi samgöngur við Vestmannaeyjar.
Að sögn Sigursveins Þórðarsonar hefur yfirvinnubannið komið sér illa fyrir félagsmenn. Til að mynda eiga á annað hundrað krakkar að keppa í handbolta í Reykjavík um helgina en vegna yfirvinnubannsins missa þau tvo daga úr skóla, föstudag og mánudag, auk þess sem foreldrar verða að bera kostnað af gistingu fyrir þau þrjár nætur.
Sigursveinn segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort allir krakkarnir mæti til leiks þar sem um langan tíma er að ræða og skólayfirvöld eðlilega ekki ánægð með að missa þau úr skólanum í tvo daga. Það hefur oft verið þannig hjá okkur í þessum ferðum að það hefur tekist að fara í dagsferðir, farið að morgni héðan frá Vestmannaeyjum og komið heim að kvöldi eftir keppni yfir daginn.
Þannig að ekki þarf að kaupa gistingu en nú þarf að kaupa gistingu í þrjár nætur, segir Sigursveinn. Hefur áhyggjur af því hversu hægt miðar Hann segir að þetta sé vond staða, ekki bara fyrir félagsmenn í ÍBV heldur alla Vestmannaeyinga.
Sigursveinn segist hafa áhyggjur af því hversu hægt miðar í viðræðum en fjórir dagar eru liðnir frá síðasta fundi. Það skjóti líka skökku við að samningsumboð um atriði sem snertir Vestmannaeyjar sé í Reykjavík. Þetta komi sér illa fyrir íbúa í Vestmannaeyjum en skipti ekki öllu fyrir þá sem sjá um samningaviðræðurnar.
En þetta hefur einnig áhrif á fyrirtæki í Vestmannaeyjum líkt og fjallað var um í Morgunblaðinu nýverið. Þar var haft eftir Njáli Ragnarssyni, framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar Vestmannaeyja, að allur fiskur af markaðnum með Herjólfi.
Við verðum vör við það að seljendur eru hræddir við verðið, setja minna á markað og flytja meira í gáma beint til útlanda eða í vinnslu hér.
Menn eru einfaldlega hræddir við verðfall, segir hann í samtali við Morgunblaðið. Þar til samningar nást í viðræðum Sjómannafélags Íslands, fyrir hönd starfsmanna Herjólfs, við SA, fyrir hönd Eimskips, mun skipið sigla eins oft og það kemst á milli lands og Eyja til klukkan 17 á daginn í miðri viku.
Engar ferðir verða um helgar. Samkvæmt upplýsingum frá Sjómannafélagi Íslands eru 12-14 undirmenn um borð í Herjólfi sem skipta á milli sín vöktum.
Jónas Garðarsson hjá SÍ segir í samtali við Morgunblaðið í síðustu viku að samningarnir snúist um vinnutíma, hærri laun og sjómannaafslátt. //////////////////Auðvitað þarf þarna aga og setja á þetta lög og ekkert annað,það ýtir undir samninga og það er þjóðarhagur sem þarna er undir ekki spurning!!!þessi verstöð er okkur mikils virði ,og ég tala nú ekki um þetta duglega fólk þarna,sem annarstaðar er að fiska fyrir gjaldeyrir okkar allra!!Lög á svona verkföll fárra manna sem getað stoppað af eina stærstu verstöð landsins er ekki hægt,setja lög og skildu á samninga,afturvirkt þetta er þjóðarmein okkar í dag á tölvuöld að fara í verkfall,við bara sínum að við stjórnum landinu en ekki einkver gaur hjá sjómannafélaginu,allir mundu segja að ég væri á móti sjómönnum,als ekki þeir eru mínir uppáhalds menn,en verkfall leysir ekki þetta dæmi en það gerir þarna ekkert nema tap,leysum málin ekki spurning,með lögum!!!!/Halli gamli
.
Vond staða fyrir Eyjamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll, það er ekki nóg að semja um laun, farþegar eru í lífshættu ekki neitt strfsfólk er til að aðstoða ef eitthvað skeður
Bernharð Hjaltalín, 13.3.2014 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.