14.3.2014 | 17:48
Ákallið hærra en ég átti von á;Engin afsökun Bjarni Ben,stattu við ykkar að segja þessu upp!!!
Ákallið hærra en ég átti von á Innlent | mbl | 14.3.2014 | 14:29 Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ákallið eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að Evrópusambandinu hafa verið hærra en hann átti von á í ljósi þess að ekki er stuðningur við aðild hvorki á þingi né hjá þjóðinni.
Stjórnvöldum beri að hlusta og vinna með stöðuna á þingi.Skoða þurfi því hvort þjóðin eigi að geta tekið afstöðu um þingsályktun stjórnarinnar um hvort slíta eigi viðræðunum.
Hann segir jafnframt að margar hugmyndir hafi komið fram um hvernig þjóðinni verði hleypt að ákvarðanatökunni og nefnir tillögur sem hafi borist frá Vinstri-grænum, Pírötum og Bjartri framtíð sem utanríkismálanefnd þurfi að skoða vandlega.
Samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar um að hlusta bæði á þau sjónarmið sem séu á þingi og þau sem hafi m.a. birst í mótmælum og undirskriftasöfnunum að undanförnu.
Bjarni segir jafnframt mikilvægt að líta ekki svo á að slit á viðræðunum þýði einhvers konar kul í samskiptum við Evrópusambandið og útiloki aðra umsókn í framtíðinni
Ekki verður séð að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að draga umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið til baka hafi aukið stuðning við inngöngu í sambandið eða að umsóknarferlinu að því verði haldið áfram sé horft til niðurstaðna skoðanakannana sem Capacent hefur gert á undanförnum mánuðum.
Staðan er þvert á móti svo að segja óbreytt. Ríkisútvarpið birti í dag niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent um Evrópumálin sem gerð var eftir að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lagði fram þingsályktunartillögu um að umsóknin um inngöngu í Evrópusambandið yrði dregin til baka.
Könnunin var gerð dagana 27. febrúar til 5. mars en þingsályktunartillöguna lagði ráðherrann fram 21. febrúar síðastliðinn eftir að þingflokkar beggja ríkisstjórnarflokkanna höfðu samþykkt hana á fundum sínum.
Samkvæmt skoðanakönnuninni eru 56% andvíg inngöngu í Evrópusambandið en 44% henni hlynnt sé aðeins miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti.
Capacent kannaði afstöðu fólks til sama álitamáls í nóvember síðastliðnum fyrir samtökin Já Ísland sem hlynnt eru inngöngu í sambandið.
Þá reyndust 58% andvíg inngöngu í Evrópusambandið en 42% henni hlynnt. Samkvæmt því er um mjög litlar breytingar að ræða undanfarna mánuði. Hliðstæður stuðningur við þjóðaratkvæði 2009 Eins var spurt um afstöðuna til þess að halda viðræðum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið áfram í skoðanakönnun Capacent sem birt var í dag.
Samkvæmt henni eru 59% því hlynnt en 41% andvíg. Til samanburðar gerði Capacent skoðanakönnun í ágúst á síðasta ári fyrir J
á Ísland þar sem 60% voru hlynnt áframhaldandi viðræðum en 40% andvíg. Hliðstæð könnun Capacent fyrir Já Ísland í mars fyrir ári sýndi 61% hlynnt áframhaldandi viðræðum en 39% andvíg.
Ennfremur var spurt í skoðanakönnun Capacent frá í dag um stuðning við að þjóðaratkvæði færi fram um framhald umsóknarferlisins að Evrópusambandinu.
Samkvæmt könnuninni eru 72% hlynnt því en 21% því andvíg. Ekki verður séð að Capacent hafi gert skoðan
Samkvæmt skoðanakönnuninni, sem gerð var fyrir samtökin Heimssýn sem andvíg eru inngöngu í sambandið, töldu 76,3% mikilvægt að slíkt þjóðaratkvæði færi fram en 17,8% voru því ósammála.akönnun í þessa veru frá því sumarið 2009 þegar fyrirtækið kannaði afstöðu fólks til þess að þjóðaratkvæðis færi fram um umsókn að Evrópusambandinu sem þá var fyrirhuguð.
Athygli vekur hversu hliðstæð hlutföll er um að ræða og í könnun Capacent sem Ríkisútvarpið greindi frá í dag. Ekki kom hins vegar til þess að þjóðaratkvæði færi fram um umsóknina um inngöngu í Evrópus
ambandið.//////////////////Við megum ekki láta blekkjast al ekki,þetta síðasta útspil ESB í gær að semja við Færeyinga og Norðmenn um Makrílin lokar algjörlega á samvinnu við þetta pakk þarna sem bara vill eyðileggja fiskimiðin okkar og ekkert annað,burt með þessa samninga og standa við það/Halli gamli
Ákallið hærra en ég átti von á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Áfram Bjarni, vantar bara umsókn um hvort sækja eigi um að sækja um inngöngu í mygluðu mjöltunnurnar sem íslendingum var úthlutað hérna í "denn" (að sjálfsögðu á dönsku)
Hörður Einarsson, 14.3.2014 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.