Vilja fleiri lögreglukonur Innlent | mbl.is | 2.7.2014 | 14:59 Konur eru um 12,6% starfandi lögreglumanna. Kvenréttindafélag Íslands skorar á embætti ríkislögreglustjóra að fjölga konum innan lögreglunnar, sérstaklega í yfirmannsstöður.
Konur eru aðeins um 12,6% starfandi lögreglumanna og í upphafi þessa árs gengdu 23 karlar stöðu yfirlögregluþjóns, en engin kona.21 karl er aðstoðaryfirlögregluþjónn, en tvær konur. Konur eru aðeins um 12.6% starfandi lögreglumanna, en hlutfall þeirra af brautskráðum nemendum úr Lögregluskólanum er mun hærra.
Skýringin er tvíþætt, að sögn Kvenréttindafélagsins: Konur sem útskrifast úr Lögregluskólanum ráðast síður til starfa innan lögregluembætta landsins en bekkjarbræður þeirra, og þær sem ráðnar eru til löggæslustarfa eru líklegri til að hverfa úr starfi en karlkyns samstarfsmenn þeirra.
Konur telja sig ekki hafa aðgengi að efstu stigum Félagið rifjar upp skýrslu sem kynnt var í október 2013 um vinnumenningu innan lögreglunnar, sem Finnborg Salóme Steinþórsdóttir vann í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra og Háskóla Íslands.
Niðurstöður skýrslunnar bendi til að gjörbreyta þurfi starfi og skipulagningu lögregluembættanna á Íslandi. Þar kom í ljós að tæplega þriðjungur kvenna í lögreglunni hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu eða í tengslum við starf sitt hjá lögreglunni.
Áreitnin var af hálfu samstarfsmanna, yfirmanna, undirmanna og utanaðkomandi aðila. Í skýrslunni, sem byggð er á könnunum og viðtölum við lögreglumenn, kemur einnig skýrt fram að konur telja sig ekki hafa aðgengi að efstu starfsstigum lögreglunnar, og að þær séu af samstarfsmönnum sínum taldar síður hæfar til lögreglustarfa en karlar.
Sjá fréttir mbl.is um málið: Konur verða fyrir kynferðislegri áreitni Ungar löggur íhaldssamastar Beiti sér fyrir því að fjölga konum Ísland er það land í heimi þar sem jafnrétti kynja er talið hvað mest og er efst á lista Alþjóðaviðskiptaráðsins (World Economic Forum) yfir þau ríki heims þar sem bil á milli kynjanna er minnst.
Á Íslandi er jafnrétti kynjanna vel tryggt í lögum. Engu að síður er aðstöðumunur kynjanna enn mikill hér á landi og dæmi um þann mun er að þegar borgarar eiga samskipti við verði laganna, þá mæta þeim nánast eingöngu karlmenn, segir í áskorun Kvenréttindafélagsins.
Kvenréttindafélag Íslands krefst þess að yfirvöld og embætti ríkislögreglustjóra beiti sér skilvirkt og einbeitt að því að fjölga konum innan lögreglunnar, að fjölga konum innan efstu starfsstiga lögreglunnar, og að því að bæta starfsskilyrði kvenna og karla innan lögreglunnar svo allir lögreglumenn geti starfað óhultir frá einelti og áreitni samstarfsmanna sinna.///////////Þetta er mikið álitamál,þessi störf eru ekki kvenleg að mínu mati,en það er kannski skoðun okkar þröngsýnni manna,en þetta er og verður,umdeilt af hverju ekki þá sjómenn og slöngvuliðsmenn,við sem höfum átt mæður og konur okkar finnst þetta vera,svo að þessi störf séu ekki við hæfi kvenna,þær blessaðar eiga að sjá þetta sjálfar,allt þetta jafnrétta er komið í öfgar það vitum við flest,Launajafnrétti þarf að ljúka það er stórt mál og á að vara löngu komið í rétt horf,og auðvitað annað sem ber að hafa fyrir bæði kyn jafnrétti en ekki í hvað vinnu sem er!!!!Elskurnar þessar eru mér hugleiknar sem góðar í fletst störf en ekki þessi Lögreglustörf!!!////Halli gamli
Vilja fleiri lögreglukonur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.