17.8.2014 | 13:06
Ótímabær dauðsföll eru óásættanleg/Auðvitað eiga allir að fylgjast með heilunni!!!
Ótímabær dauðsföll eru óásættanleg Innlent | mbl | 17.8.2014 | 12:36 Heilbrigður lífstíll er mikilvægasta forvörnin gegn hjarta-... Ótímabær dauðsföll eru óásættanleg, fræðilega séð.
Þau eru ekki bara óréttlát, heldur er óásættanlegt að menn séu að deyja úr einhverju sem er fyrirbyggjanlegt," segir Vilhjálmur Guðnason, forstöðulæknir hjá Hjartavernd.
Hann segir að æskilegt sé fyrir fólk að fara í skimun og athugun hjá lækni um 45 ára aldur.
Mikilvægt sé að fólk átti sig á líkamsástandi sínu snemma til að auka líkur á heilbrigðu lífi í ellinni. Æðarsjúkdómar séu þess eðlis að hægt sé að hægja á þróun þeirra og jafnvel koma í veg fyrir áföll.
Það eru þekktir áhættuþættir fyrir hjarta- æðarsjúkdóma og þegar fólk er komið á 45 ára aldur er skynsamlegt að mæla blóðfitu og blóðþrýsting. Jafnvel fyrr ef þessir sjúkdómar eru í ættinni, segir Vilmundur.
Flestir í miðlungs eða lágri áhættu Hann segir að langflestir sem fái afleiðingasjúkdóma frá æðarsjúkdómum á borð við heilablóðföll og hjartaáföll séu í miðlungs eða lágri áhættu,
samkvæmt hefðbundnum aðferðum til að leita uppi slíka sjúkdóma.
Hann segir að efla þurfi skimun hjá þessum hópi. Það þarf að efla það hvernig við finnum þá sem eru á þeirri braut að þróa með sér sjúkdóminn
. Við hjá Hjartavernd erum að vinna heilmikið í því og erum að búin að þróa áhættureikna sem gera okkur kleift að sjá hverjir eru líklegir til að vera með æðarsjúkdóm sem er mælanlegur með myndgreiningu á borð við ómskoðun, segir Vilmundur.
Horfa til lengri tíma Hann segir oft séu það ótímabær dauðföll einhvers nákomins eða einhvers þekkts einstaklings í samfélaginu sem reki fólk til læknis.
Það kemur róti á huga fólks og það er ekkert mál að láta mæla sína áhættuþætti og sjá hvort það er eitthvað sem mælist áberandi hátt.
Hann segir að með þessum nýju nálgunum sé horft til lengri tíma. Við erum að reyna að greina það hvernig fólk verður þegar það er um sjötugt, segir Vilmundur.
Langflestir lifa af Vilmundur segir að langstærsti hluti aldraðra sem fái hjarta- eða heilaáfall lifi það af. Þá er þetta orðin byrði fyrir fólkið sjálft sem og samfélagið að glíma við þessa sjúkdóma sem, fræðilega séð, er hægt að fyrirbyggja.
Bæði til að seinka þróun sjúkdómanna, og að koma í veg fyrir afleiðingar af sjúkdómunum, segir Vilmundur.
Hann segir að 25-30% fólks eftir sjötugt lifi við afleiðingar sjúkdóma, annað hvort vegna heila- eða
hjartaáfalls eða hefur þurft að fara í aðgerðir til að koma í veg fyrir frekari vandamál./////////////////////////////Það er ekki, spurning um að fólk á ,að fyljast með heilsu sinni,og eins og læknirinn segir ekki seinna er 45 ára,jafnvel þó menn finni ,ekkert fyrir neinu,nauðsin að vita það nógu snemma,ef eitthvað skyldi að vera!!! þessi lesning er þörf fyrir alla,og fólk á að taka þetta alvarlega//Halli gamli
Ótímabær dauðsföll eru óásættanleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.