Jafnvel 50 sinnum stærra en síðast Innlent | mbl.is | 31.8.2014 | 14:15 Hraunið hefur runnið bæði til austurs og vesturs. Magnús Tumi Guðmundsson segir að gosið sem stendur yfir í Holuhrauni sé margfalt stærra ensíðasta gos þar.
Hraunflæðið er um 1.000 rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar er vatnsflæðið í Jökulsá á Fjöllum um 200 rúmmetrar á sekúndu.Gosið er allavega miklu stærra, segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, um gosið sem stendur yfir í Holuhrauni.
Milli sjö og átta í morgun var um kílómetra breiður og þrigga kílómetra langur hrauntaumur búinn að myndast frá gosstöðvunum.
Við metum það svo, sem er vissulega mjög gróft áætlað, að það séu um 1.000 rúmmetrar á sekúndu að koma upp úr þessari sprungu.
Til samanburðar renna tæplega 200 rúmmetrar á sekúndu í Jökulsá á Fjöllum, segir Magnús Tumi. Vefmyndavélar Mílu góðar í góðu skyggni Vefmyndavélar Mílu (hér og hér) sýna svæðið mjög vel, þegar skyggni er gott, og þær sýna að það er fullur gangur í þessu ennþá. H ann segir ekkert vitað um hversu lengi gosið muni halda áfram.
Magnús Tumi í TF-SIF. Magnús Tumi í TF-SIF. Friðrik Það gæti staðið í einhverja klukkutíma með þessum krafti, eða einhverja daga og jafnvel vikur.
Ef það yrði vikur, þá dregur nú væntanlega eitthvað úr þessu. Magnús Tumi segir að sprungan sýni að gat sé komið gat á kvikuganginn, þannig að upp úr honum flæðir heilmikið hraun.
Hann segir mælingar ekki ekki liggja fyrir um hvort jafnmikið renni úr Bárðarbungu inn í kvikuganginn og upp úr sprunginni, en það gæti verið svipað magn.
Við erum ekki með nákvæmar tölur til að geta fullyrt það á þessari stundu. Það verður mjög áhugavert í kvöld þegar það koma niðurstöður úr GPS mælingum eftir að gosið hófst.
Þá komi nýjar mælingar um hvort og þá hvaða áhrif gosið hafi á þá gliðnun sem hefur mælst undanfarnar tvær vikur.
Stærra eldgos en í Eyjafjallajökli Þetta er töluvert eldgos.
Þó svo það sé erfitt að bera svona gos saman við sprengigos eins og það sem varð í Eyjafjallajökli, þá er meira magn af kviku að koma upp úr sprungunni heldur en þegar mest lét í því gosi, segir Magnús Tumi.
Áhrifin eru þó töluvert öðruvísi. Gosið í Holuhrauni er enn öflugt eins og þetta skjáskot af vefmyndavél Mílu á Bárðarbungu ... Gosið í Holuhrauni er enn öflugt eins og þetta skjáskot af vefmyndavél Mílu á Bárðarbungu sýnir.
Úr vefmyndavél Mílu Þetta er flæðigos, það er eiginlega engin gjóskumyndun svo að þetta er einn besti staður landsins til að fá svona verulegt gos.
Þarna er nóg pláss og engin mannvirki í hættu eða slíkt. Við horfum bara á þessa gríðarlegu miklu landmótun.
Óljóst hvað gerist næst Magnús Tumi segir ekki ljóst hvað gerist næst. Ekki er útilokað að sprungan stækki í átt að jöklinum, og opnist jafnvel undir honum.
Það er möguleiki en það er óljóst.
Að sama skapi gæti eldgosið hætt og eldsumbrotum lokið. Eldgosið og þær hræringar sem hafa orðið á undanförnum vikum hafa verið bornar saman við Kröfuelda.
Magnús Tumi segir það ekki fjarri lagi. Í meginatriðum er þetta mjög svipað. Kröflueldar voru allrosalegir og stóðu í tæpan áratug.
Við höfum engar forsendur til að segja til um hvort þetta klárar sig í einum atburði sem er yfirstandand, eða hvort þetta sé upphafið á röð atburða.
Viðbúnaður hefur ekki verið aukinn í sveitunum norðan Vatnajökuls, en viðbúnaður hefur samt sem áður verið nokkuð mikill undanfarna daga. Vísindamenn fengu ágætt tækifæri til að mynda gosið í morgun áður en veðrið versnaði.
Vísindamenn fengu ágætt tækifæri til að mynda gosið í morgun áður en veðrið versnaði. Ljósmynd/Á​rmann Höskuldsson Fólk frá Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofunni og erlendum samstarfsaðilum þeirra eru á svæðinu.
Þetta er á annan tug manna og eru að gera mælingar eins og aðstæður leyfa. Þau eru okkar aðalupplýsingaveita um það sem í gangi er þarna.
Það viðrar ekki til flugs í dag þannig að við munum treysta á, meðan ekkert stórkostlegt gerist, að þeir sem eru á svæðinu geti fylgst með því sem er að gerast.
Magnús Tumi segir menn búna undir að sprungan lengist upp í jökulinn.
En það er ekkert sérstakt sem bendir til þess að það ætli að gera það á þessari stundu./////////////Þetta fór vel sem fór, fyrst hann fór að kjósa,og það er sko ekki spurning að þetta,er besti staðurinn,svo skrítilega sagt!!!,en við bara vonum að þetta færist ekki að Öskju eða Kröflu og þetta verði bara bundið við þennan stað,og það væri auðvitað óskhyggja ekkert annað//Halli gamli
Jafnvel 50 sinnum stærra en síðasta gos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.