69 þúsund umsóknir um leiðréttingu Innlent | mbl.is | 2.9.2014 | 12:00 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð... Alls bárust 69 þúsund umsóknir um leiðréttingu verðtryggðra lána, en umsóknarfrestur rann út í gær.
Áfram verður tekið við umsóknum um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán og hafa 27.500 einstaklingar þegar sótt um þann hluta aðgerðar stjórnvalda um lækkun höfuðstóls húsnæðisskulda
Frestur til að sækja um höfuðstólsleiðréttingu á verðtryggðum fasteignalánum í samræmi við aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun lána og lög þar um, rann út í gær, 1. september.
Sótt var um til ríkisskattstjóra og bárust embættinu alls um 69 þúsund umsóknir frá 105 þúsund einstaklingum.
Tekið var við umsóknum á vefsíðunni www.leidretting.is frá 18. maí sl. Frá 28. maí hefur jafnframt verið mögulegt að sækja um til ríkisskattstjóra að ráðstafa séreignarsparnaði inn á fasteignaveðlán.
Heimildirnar taka til iðgjalda vegna launa á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017.
Frestur til þess að sækja um ráðstöfun séreignarsparnaðar fyrir tímabilið frá 1. júlí 2014 er útrunninn. Umsóknir sem gerðar eru eftir 31.ágúst taka gildi frá því að þær berast og taka til launatímabila frá sama tíma.
Þá geta einstaklingar sem ekki eiga íbúðarhúsnæði til eigin nota sótt um fram til 30. júní 2019 að nýta séreignarsparnað sem aflað var á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 til kaupa eða byggingar á húsnæði til eigin nota.
Tekið er við slíkum umsóknum á www.leidretting.is. Í gærkvöldi höfðu 27.500 einstaklingar sótt um að ráðstafa séreignarsparnaði inn á fasteignaveðlán.
Unnið úr umsóknum hjá ríkisskattstjóra Framkvæmd lækkunar á verðtryggðum lánum fer fram í tveimur áföngum sem lokið verður árið 2014.
Í fyrri áfanga mun ríkisskattstjóri vinna úr umsóknum og niðurstaða útreikninga verður í framhaldinu birt umsækjendum.
Vinnsla umsókna er nú þegar hafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki á nokkrum vikum.
Í seinni áfanga verður fjárhæð til lækkunar á höfuðstól verðtryggðra fasteignalána ráðstafað inn á lán. Umsækjendur þurfa að samþykkja ráðstöfunina með rafrænni undirritun.
Nýtt eru rafræn skilríki sem fáanleg eru á kortum og símum. Þetta er gert til að tryggja öryggi umsækjenda og eflir örugg rafræn viðskipti á Íslandi.
Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar munu rafrænar undirskriftir verða notaðar í ríkari mæli í
framtíðinni, svo sem við vefskil á skattframtölum til ríkisskattstjóra./////////////////Þetta verður erfitt verk og kostnaðurinn,sem í þetta fer slagar uppí það ,sem er til skiptana,en það ekki gefið upp,þessar 69 þus íbúðareigendur sækja um og frá mörgum Löndum þeir sem hafa flúið fá einnig,er þetta réttlæti spyr bara?? Svo og þessi björgun er ekki til þessa að redda því, að menn eignist nema mjög fárra,Meðallánin veit ég ekki um ,en samt er þetta bara lenging í snörunni, fyrir mjög marga eða mikinn meirihluta,Þetta synir að Bankarnir og Íbúðarlánasjóður eru varðir í bak og fyrir, Enn svona er þetta,og verður og það er ekki skrítið að Framsóknarflokkur fari niður á við í könnunum,og minn flokkur aðeins uppávið,sem manni finnst skrítið ,þvi hann þorir ekki í bankana,það er galli míns flokks,og ef þessu verður ekki bætt ,meira er hætt við að þessi ríkisstjórn ,verði ekki farsæl þvi miður ,sjá ekki þessir menn sem við kusum að þessi fjarmálastjórnendur eru látnir í friði til að koma okkur á kaldan klakann!!!/Halli gamli
69 þúsund umsóknir um leiðréttingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.