Segir umboðsmann ekki gæta meðalhófs/Hanna Birna svarar fyrir sig,og það vonandi til að þessari vitleysu linnir!!!


Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra.Segir umboðsmann ekki gæta meðalhófs Innlent | mbl.is | 9.9.2014 | 17:31 Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, gerir alvarlegar athugasemdir við að umboðsmaður Alþingis hafi neitað henni um frest til að svara bréfi hans frá 25. ágúst sl. áður en það var birt almenningi.

Hún segir hann hafa farið á svig við reglur stjórnsýsluréttar um meðalhóf og andmælarétt.

Í svari Hönnu Birnu við bréf­inu seg­ir að hún sjái ekki hvaða til­gangi það þjóni að taka upp at­hug­un á starfs­hátt­um henn­ar og fjalla um hana fyr­ir opn­um tjöld­um án þess að um leið sé gerð grein fyr­ir þeim sjón­ar­miðum sem hún hafi fram að færa.

„Að lok­um er vert að árétta það sem fram kom í upp­hafi að ákveðin grunn­for­senda at­hug­un­ar yðar líkt og ég hef lýst hér að fram­an er röng.

L[ög­r­eglu­stjór­inn á höfuðborg­ar­svæðinu] stjórnaði ekki um­ræddri rann­sókn, þó að starfs­menn við embætti hans hafi unnið að henni.

Þegar frá upp­hafi lá ljóst fyr­ir að þeir störfuðu und­ir beinni yf­ir­stjórn R[rík­is­sak­sókn­ara] sem tók ákv­arðanir um rann­sókn­araðgerðir.

Út frá þess­ari staðreynd verður að skoða sam­skipti mín og L[lög­reglu­stjór­ans] á um­rædd­um tíma sem ég ít­reka að voru ekki í sam­ræmi við þá mynd sem þér dragið upp í bréfi yðar.

Hanna Birna Kristjáns­dótt­ir, inn­an­rík­is­ráðherra, seg­ir í bréfi sínu til umboðsmanns Alþing­is að eng­um skráðum regl­um eða hefðum hafi verið til að dreifa um hvernig ráðherra við aðstæður eins og þær í leka­mál­inu svo­nefnda beri að bregðast við.

Af mál­inu megi hins veg­ar draga lær­dóm. Í bréf­inu seg­ir hún meðal ann­ars: „Varla get­ur tal­ist at­huga­vert að sá sem sæta þarf rann­sókn á starf­semi sem hann stjórn­ar komi á fram­færi slík­um áhyggj­um og er vand­séð hverj­ir aðrir en stjórn­end­ur þessa ráðuneyt­is hefðu átt að benda á slík áhyggju­efni.

Þess þarf hins veg­ar að gæta vand­lega að slík aðkoma geti aldrei tal­ist verða af­skipti af rann­sókn, síst af öllu til að draga úr virkni henn­ar og ár­angri.

Ég taldi sam­skipti mín við L ekki geta haft nokk­ur slík áhrif, enda hef­ur það verið staðfest með lykt­um rann­sókn­ar og niður­stöðu rann­sak­enda og rík­is­sak­sókn­ara um að rann­sókn hafi verið ít­ar­leg og full­nægj­andi.“ Þá seg­ist hún telja nauðsyn­legt að reynsl­an af þessu máli verði nýtt til að móta starfs­regl­ur ef til sam­bæri­legra at­b­urða kæmi í framtíðinni.

„Af þess­ari ástæðu hafði ég uppi orð við L um að nauðsyn­legt væri að at­huga fram­kvæmd þess­ar­ar rann­sókn­ar svo draga mætti af henni álykt­an­ir um efni slíkra starfs­reglna. Ekk­ert annað vakti fyr­ir mér með orðum í þessa átt.

Nú hef­ur sam­tal mitt við L um þetta verið slitið úr öllu sam­hengi og sett í þann bún­ing að í þessu hafi fal­ist ein­hvers kon­ar þving­un.

Ekk­ert er fjær sanni. Samt sem áður er þetta sett fram með þess­um hætti í bréfi yðar og það birt án þess að mér hafi verið gef­inn kost­ur á að koma sjón­ar­miðum mín­um á fram­færi.

Rétt er að taka hér fram að L sagði sjálf­ur að þessi rann­sókn væri án for­dæma, líkt og fram kem­ur í bréfi

yðar, auk þess sem hann hef­ur staðfest að eng­in óeðli­leg af­skipti hafi verið af rann­sókn­inni.“//////////////////Þetta svar hlýtur að nægja Umboðsmanni,að mynni hyggju er það ,en við sjáum það brátt, en hún svarar þarna alveg hreint út og það er málið að gera það,og mun skila árangri,hún er að engu sek að því sem er sökuð um,og hvað eru komnar nýjar  reglur sem við ekki vitum um,sem segja hana seka,nei það getur ekki verið,við bíðum svara frá umboðsmanni,og það getur ekki verið lengi á leiðinni!!!/Halli gamli


mbl.is Segir umboðsmann ekki gæta meðalhófs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er nokkuð viss um að gömlu reglurnar gildi enn. Hún verður ekki dæmd eftir því sem hún heldur fram heldur því sem satt er í málinu. Á þessu virðist æði oft vera nokkur munur hjá kéllu. Útúrsnúningar og rangfærslur koma henni ekki undan spurningum umboðsmanns þó þær nægi auðblekktum.

Ufsi (IP-tala skráð) 9.9.2014 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband